Tvö norsk skothylki innan um þúsundir breskra og amerískra í Hlíðarfjalli

Skothylki úr seinni heimsstyrjöld eru á víð og dreif í Hlíðarfjalli. Þau eru af ýmsum stærðum og gerðum. Sum eru áhugaverðari en önnur eins og gengur. Af öllum þeim aragrúa hylkja sem fundist hafa í fjallinu undanfarin ár eru nokkur sem skipa sérstakan sess. Þau eiga það sameiginlegt að bera merkingar sem ekki hafa fundist á öðrum skothylkjum á þessum slóðum.
Skemmst er að minnast þýska riffilskotsins sem fannst í fjallinu í sumar og vakti mikla athygli lesenda Grenndargralsins. Ýmsar tilgátur hafa komið fram um hvernig þýskt skot frá árinu 1937 komst í ruslaholu erlendra hermanna í Hlíðarfjalli á stríðsárunum. Ein er sú að breskur hermaður sem gegndi herþjónustu í Noregi á meðan landið var hernumið af Þjóðverjum hafi haft það með sér þegar hann kom til Akureyrar í upphafi hernáms hér. Önnur af svipuðum meiði snýr að norskum flóttamönnum sem flúðu undan Þjóðverjum og sigldu til Akureyrar þar sem þeir gengu til liðs við norska skíðaherdeild í Lögmannshlíð ofan Akureyrar. Skíðaherdeildin fór ófáar ferðir upp í Hlíðarfjall yfir vetrartímann á árunum 1941-1943, ýmist ein síns liðs eða með breskum og bandarískum hermönnum.
Tvö önnur einstök skothylki komu í leitirnar í Hlíðarfjalli í sumar. Þau bera sömu merkingar (R.A. 1934) en eru af sitt hvorri gerðinni. Annars vegar er um 45 calibera hylki að ræða en þau voru notuð í Colt-skammbyssur og Thompson-vélbyssur og hins vegar hylki af gerðinni .303 British fyrir Lee-Enfield riffla og Bren-vélbyssur. Fjölmörg amerísk og bresk 45 cal og .303 hylki leynast í fjallinu. Það sem hins vegar vekur sérstaka athygli við þessi tvö hylki er að þau eru framleidd í Noregi af Raufoss Ammunisjonsfabrikker (R.A.). Norsku hylkin þykja fágæt í samanburði við þau bresku og amerísku. Sem dæmi framleiddi RA .303 skothylki einungis í þrjú ár; 1929, 1932 og 1934.
Hvað gæti skýrt tilvist þessara tveggja norsku skothylkja innan um þúsundir breskra og amerískra skothylkja í Hlíðarfjalli? Arnar Birgir og Brynjar Karl velta vöngum yfir þessu sem og mörgu öðru sem tengist ferðalögum norsku skíðaherdeildarinnar í Hlíðarfjalli á stríðsárunum í væntanlegum þætti af Sagnalist með Adda og Binna.

.303 British sambærilegt því sem fannst í Hlíðarfjalli.






Engar athugasemdir »
Skrifa athugasemd