main image

Tilgáta um ljósmynd fær byr undir báða vængi

Sagnalist gerði á síðasta ári þrjá hlaðvarpsþætti í þáttaröðinni Sagnalist með Adda & Binna um norska skáldið og andspyrnuhetjuna Nordahl Grieg og eiginkonu hans, leikkonuna Gerd Grieg. Við vinnslu þáttanna fannst gömul ljósmynd af Nordahl Grieg í ramma sem safnað hafði ryki í háa herrans tíð á háalofti Menntaskólans á Akureyri. Engar upplýsingar fengust um myndina, hvenær hún barst skólanum og af hvaða tilefni. Engar merkingar er að finna, hvorki á rammanum né myndinni sem varpað gætu ljósi á málið. Ein tilgátan sem sett er fram í þáttunum er að Gerd Grieg hafi fært skólanum myndina að gjöf. Ef rétt reynist, öðlast ramminn og myndin sem í honum er nýtt og áður óþekkt vægi. Í gögnum skólans má sjá að frú Grieg kom færandi hendi þegar hún heimsótti skólann í október 1944 þó hvergi sé minnst á að hún hafi haft ljósmynd meðferðis. Tilgátan er kannski ekki svo fjarlæg þegar haft er í huga að tengsl hjónanna við skólann voru þónokkur. Nordahl hitti nemendur og starfsfólk skólans vorið 1942 á sal Gamla skóla. Heimsókn Gerd í Menntaskólann á Akureyri bar að tæpu ári eftir að Lancaster-sprengjuflugvél sem Nordahl var farþegi í var skotin niður yfir Berlín í desember 1943 með þeim afleiðingum að hann lést.

Líklega verður að teljast ólíklegt að sannleikurinn um myndina komi nokkurn tímann fram. Þó skal ekkert útilokað í þeim efnum. Við eftirgrennslan á veraldarvefnum fannst sams konar mynd á einungis einni vefsíðu. Hún er í lélegum gæðum og fylgir vefgrein sem birtist á norsku síðunni bokselskap.no. Ritstjóri síðunnar er Ellen Wiger en hún starfar einnig á Landsbókasafninu í Osló (Nasjonalbiblioteket). Grenndargralinu lék forvitni á að vita hvort þar leyndust upplýsingar um myndina og setti sig því í samband við Ellen. Í svari hennar kemur fram að eftir að henni barst fyrirspurn frá Gralinu, hafi hún leitað að umræddri mynd í stóru myndasafni Landsbókasafnsins í Osló (The National Library’s large photo catalogue) sem og í öðrum smærri myndasöfnum. Leitin hefði hins vegar ekki borið árangur. Ellen Wiger telur líklegt að hér sé um ljósmynd af Nordahl Grieg að ræða sem hafi verið í einkaeign þar til Menntaskólinn á Akureyri fékk hana að gjöf og þá líklega frá eiginkonu hans, frú Gerd Grieg. Undir skrifar Ellen Wiger, bokselskap.no. Þannig fær tilgátan byr frá Noregi. Eftir sem áður er saga ljósmyndarinnar á huldu. Grenndargralið heldur áfram leitinni.

Þekkir þú stúlkurnar á myndinni?

Á Þjóðarbókasafni Norðmanna í Osló (National Library of Norway) má finna ljósmyndaalbúm með gömlum ljósmyndum frá Íslandi sem aðgengilegar eru á netinu. Sumar eru augljóslega teknar á Akureyri. Upplýsingar sem fylgja myndunum eru af skornum skammti en þó kemur fram að þær eru teknar á Svalbarða og á Íslandi af áhugaljósmyndara [Album med amatørbilder fra Svalbard og Island] og ártalið er 1925. Grenndargralið fann albúmið fyrir tilviljun við leit í safninu sem tengist annars konar heimildaöflun. Tvær ljósmyndir í albúminu vöktu sérstaka athygli Gralsins.

Myndin af stúlkunum tveimur í íslenskum þjóðbúningum (stúlknabúningum) er tekin við Strandgötu á Akureyri. Gralið hefur ekki upplýsingar um hverjar stúlkurnar eru. Til upplýsingar má benda á nokkur atriði í tengslum við húsin á myndinni. Eftir því sem Gralið kemst næst er húsið lengst til vinstri Strandagata 1 ( þar sem Landsbankahúsið stendur í dag), reist árið 1904. Þar var Hótel Oddeyri um tíma. Frá árinu 1924 rak Jón Sigurðsson ljósmyndastofu á efri hæðinni. Spurning hvort efra skiltið á myndinni sé á hans vegum. Verslunin Esja er á neðri hæðinni sbr. neðra skiltið. Umrætt hús var rifið árið 1949. Húsið fyrir miðju var byggt árið 1907 en brann á stríðsárunum. Í húsinu lengst til hægri var BSA til húsa frá árinu 1923. Hin myndin sýnir fólk á hestbaki, líklega ferðamenn. Nú spyr Grenndargralið. Er myndin tekin við Glerá með bæinn Rangárvelli í baksýn þar sem Endurvinnslan er í dag? Samanburðarmyndin af Rangárvöllum um vetur sem fengin er af Sarpi er tekin af Gunnlaugi P. Kristinssyni í lok sjöunda áratugarins.

Fyrir áhugasama er slóðin á gamlar myndir frá Íslandi á Þjóðarbókasafninu í Osló hér: 

Breskur hervasahnífur fannst í Hörgárdal

Breskur hervasahnífur frá stríðsárunum fannst á dögunum í Hörgárdal, á stað þar sem Bretar höfðu aðsetur á hernámsárunum. Hnífurinn má muna fífil sinn fegurri en ástand hans er þó ekki verra en svo að mynstrið á skaftinu er enn greinilegt. Mynstur sem er einkennandi fyrir vasahnífa breskra hermanna í seinni heimsstyrjöld.

Vasahnífurinn ber með sér að hafa verið í ágætis ásigkomulagi þegar hann fór á flakk í Hörgárdal á sínum tíma. Hann fannst undir grænni torfu í vegarkanti, nokkrum metrum frá breskum braggagrunni. Leiða má líkur að því að breskur hermaður hafi týnt honum á leið í eða úr bragganum sínum þar sem hnífurinn hélt svo til næstu 80 ár eða rúmlega það.

Hnífsblaðið situr fast í skaftinu og óvíst hvort hægt verði að draga það út úr rifunni. Til mikils er að vinna því líklegt er að upplýsingar um framleiðanda og ártal megi finna á blaðinu auk bresku herörvarinnar (Broad Arrow).

Margar gerðir breskra vasahnífa með þessu tiltekna mynstri voru framleiddar fyrir breska herinn í aðdraganda stríðs og á meðan á því stóð. Nær undantekningarlaust er skaftið svart á lit. Hnífurinn í Hörgárdal er einfaldur þ.e. hann hefur einungis blað og engin aukatól sem getur bent til þess að hann sé framleiddur fyrir upphaf stríðsins eða á upphafsárum þess.

Ef skoðaðar eru myndir af sambærilegum vasahnífum á netinu má sjá ákveðin líkindi með vasahnífunum á myndunum tveimur hér fyrir neðan. Ef rýnt er í hnífinn sem fannst í Hörgárdal má hins vegar sjá að hann er örlítið boginn líkt og silfurgrái hnífurinn á rauða fletinum á þriðju myndinni. Sá ber merkingarnar PROPAT. 18230/44 Sheffield.

Landhelgisgæslan eyddi sprengju í Hlíðarfjalli

Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar eyddi breskri sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli í dag. Varðveislumenn minjanna gengu fram á hlut í fjallinu í gær sem svipaði mjög til breskrar sprengju af gerðinni Mortar og tilkynntu þegar í stað um fundinn. Eftir að hafa ráðfært sig við Landhelgisgæsluna og sent myndir og mál suður, barst staðfesting á að um mortar-sprengju væri að ræða. Teymi sprengjusérfræðinga kom norður í gærkvöld en gekk á fjallið í morgun. Rannsóknir þeirra á staðnum staðfestu að þarna væri virk sprengja á ferðinni sem hætta stafaði af og var því ákveðið að eyða henni á staðnum. Aðgerðin heppnaðist vel. Þetta er í þriðja skipti á undanförnum fjórum árum sem sprengjudeild Landhelgisgæslunnar þeysist upp í Hlíðarfjall til að eyða sprengjum úr seinni heimsstyrjöldinni. Rétt er að taka fram að svæðið sem sprengjurnar hafa verið að finnast á er utan skíðasvæðisins og úr alfaraleið. Það breytir þó ekki því að á meðan virkar sprengjur liggja á víðavangi er hættan alltaf til staðar og rétt að fara að öllu með gát.

Skotfæri úr fórum nasista fannst í Hlíðarfjalli

Grenndargralið hefur nokkur undanfarin ár fjallað nokkuð um æfingabúðir bandamanna í vetrarhernaði á stríðsárunum í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar. Athuganir Varðveislumanna minjanna þar hafa leitt ýmislegt áhugavert í ljós um dvöl skíðaherdeilda þar á árunum 1940-1943 og spennandi stríðsminjar hafa litið dagsins ljós. Nýjasti fundur Varðveislumanna á æfingasvæði breskra, amerískra og norskra hermanna í Hlíðarfjalli er sérstaklega áhugaverður og án efa sá sem veldur mestum heilabrotum.

Gripurinn sem um ræðir er skothylki af gerðinni 7.92×57mm Mauser, framleitt í Þýskalandi árið 1937. Sú staðreynd að þýskt skothylki frá stríðsárunum finnist í æfingabúðum bandamanna á Íslandi er um margt afar óvenjuleg. Ekki síður vekur athygli að umræddur gripur er skothylki ásamt byssukúlu, sem sagt heilt skot. Endinn á hylkinu gefur jafnframt til kynna að um heilt skot er að ræða þar sem engin merki eru um far eftir gikk á byssu.

Skot af þessari gerð komu fyrst fram á sjónarsviðið á tímum þýska keisaradæmisins n.t.t. á árunum 1903-1905. Eftir fyrri heimsstyrjöld máttu Þjóðverjar aðeins framleiða vopn og skotfæri í takmörkuðu magni. Þeim leyfðist að framleiða þessa tilteknu gerð skotfæra og það einungis í einni verksmiðju. Verksmiðjan bar nafnið Polte. Árið 1924 fóru Þjóðverjar að framleiða skotfæri í fleiri verksmiðjum en þó ávallt undir bókstafnum P til að villa um fyrir eftirlitsaðilum úr röðum bandamanna. Skotið í Hlíðarfjalli er framleitt í einni af 34 verksmiðjum nasista í Þýskalandi sem framleiddu ógrynni 7.92×57mm Mauser-skota á árunum fyrir stríð og hugsuð voru fyrir stríðsbrölt nasista. Í átökum seinni heimsstyrjaldar notaði þýski herinn skot eins og það sem fannst í Hlíðarfjalli, jafnt landher sem flugher (Luftwaffe), í riffla og vélbyssur.

Eins og gjarnan var með þýsk skothylki á þessum árum ber skothylkið ítarlegar merkingar. „Klukkan 12“ á hylkinu eru upplýsingar um framleiðanda. Þar má greina stafina P69 sem stendur fyrir Patronen-, Zündh.- u. Metallwarenfabrik A.G., vorm. Sellier & Bellot, Schönebeck/Elbe. Klukkan 3 geymir upplýsingar um koparblöndu. Hylki með bókstafnum S gefa til kynna að um 67% kopar sé að ræða en hylkið úr Hlíðarfjalli ber auk þess stjörnu (S*) sem þýðir að það inniheldur hærra hlutfall kopars eða 72%. Klukkan 6 er lotunúmer sem í tilfelli Hlíðarfjallspatrónunnar er 8. Að lokum klukkan 9 má greina töluna 37 sem táknar framleiðsluár.

Þýsk skotfæri á Íslandi á stríðsárunum heyrðu til undantekninga. Dæmi eru um að skot úr þýskum flugvélum sem enduðu ferð sína á Íslandi hafi komist í umferð hér. Þá má velta fyrir sér hvort einhverjir úr hópi breskra hermanna sem hrökkluðust undan Þjóðverjum í Noregi í upphafi stríðs og komu í land á Akureyri hafi tekið þýsk skot með sér sem minjagripi. Þetta eru jú aðeins tilgátur. En að eitt slíkt skot, framleitt í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar og ónotað skuli finnast upp í fjalli á svæði þar sem bandamenn æfðu sig í vetrarhernaði vekur upp ýmsar spurningar. Þess má geta að skotið fannst í holu ásamt smárusli sem rekja má til veru hermanna í fjallinu á stríðsárunum. Leikur þannig enginn vafi á því að skotið er úr röðum hermanns sem dvaldi í fjallinu á árunum 1940-1943. Fundur þýska skothylkisins í Hlíðarfjalli er sannkölluð ráðgáta.

Hér má sjá stutt myndband um fund skothylkisins í Hlíðarfjalli.