Skotfæri úr fórum nasista fannst í Hlíðarfjalli

Grenndargralið hefur nokkur undanfarin ár fjallað nokkuð um æfingabúðir bandamanna í vetrarhernaði á stríðsárunum í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar. Athuganir Varðveislumanna minjanna þar hafa leitt ýmislegt áhugavert í ljós um dvöl skíðaherdeilda þar á árunum 1940-1943 og spennandi stríðsminjar hafa litið dagsins ljós. Nýjasti fundur Varðveislumanna á æfingasvæði breskra, amerískra og norskra hermanna í Hlíðarfjalli er sérstaklega áhugaverður og án efa sá sem veldur mestum heilabrotum.
Gripurinn sem um ræðir er skothylki af gerðinni 7.92×57mm Mauser, framleitt í Þýskalandi árið 1937. Sú staðreynd að þýskt skothylki frá stríðsárunum finnist í æfingabúðum bandamanna á Íslandi er um margt afar óvenjuleg. Ekki síður vekur athygli að umræddur gripur er skothylki ásamt byssukúlu, sem sagt heilt skot. Endinn á hylkinu gefur jafnframt til kynna að um heilt skot er að ræða þar sem engin merki eru um far eftir gikk á byssu.
Skot af þessari gerð komu fyrst fram á sjónarsviðið á tímum þýska keisaradæmisins n.t.t. á árunum 1903-1905. Eftir fyrri heimsstyrjöld máttu Þjóðverjar aðeins framleiða vopn og skotfæri í takmörkuðu magni. Þeim leyfðist að framleiða þessa tilteknu gerð skotfæra og það einungis í einni verksmiðju. Verksmiðjan bar nafnið Polte. Árið 1924 fóru Þjóðverjar að framleiða skotfæri í fleiri verksmiðjum en þó ávallt undir bókstafnum P til að villa um fyrir eftirlitsaðilum úr röðum bandamanna. Skotið í Hlíðarfjalli er framleitt í einni af 34 verksmiðjum nasista í Þýskalandi sem framleiddu ógrynni 7.92×57mm Mauser-skota á árunum fyrir stríð og hugsuð voru fyrir stríðsbrölt nasista. Í átökum seinni heimsstyrjaldar notaði þýski herinn skot eins og það sem fannst í Hlíðarfjalli, jafnt landher sem flugher (Luftwaffe), í riffla og vélbyssur.
Eins og gjarnan var með þýsk skothylki á þessum árum ber skothylkið ítarlegar merkingar. „Klukkan 12“ á hylkinu eru upplýsingar um framleiðanda. Þar má greina stafina P69 sem stendur fyrir Patronen-, Zündh.- u. Metallwarenfabrik A.G., vorm. Sellier & Bellot, Schönebeck/Elbe. Klukkan 3 geymir upplýsingar um koparblöndu. Hylki með bókstafnum S gefa til kynna að um 67% kopar sé að ræða en hylkið úr Hlíðarfjalli ber auk þess stjörnu (S*) sem þýðir að það inniheldur hærra hlutfall kopars eða 72%. Klukkan 6 er lotunúmer sem í tilfelli Hlíðarfjallspatrónunnar er 8. Að lokum klukkan 9 má greina töluna 37 sem táknar framleiðsluár.
Þýsk skotfæri á Íslandi á stríðsárunum heyrðu til undantekninga. Dæmi eru um að skot úr þýskum flugvélum sem enduðu ferð sína á Íslandi hafi komist í umferð hér. Þá má velta fyrir sér hvort einhverjir úr hópi breskra hermanna sem hrökkluðust undan Þjóðverjum í Noregi í upphafi stríðs og komu í land á Akureyri hafi tekið þýsk skot með sér sem minjagripi. Þetta eru jú aðeins tilgátur. En að eitt slíkt skot, framleitt í aðdraganda seinni heimsstyrjaldar og ónotað skuli finnast upp í fjalli á svæði þar sem bandamenn æfðu sig í vetrarhernaði vekur upp ýmsar spurningar. Þess má geta að skotið fannst í holu ásamt smárusli sem rekja má til veru hermanna í fjallinu á stríðsárunum. Leikur þannig enginn vafi á því að skotið er úr röðum hermanns sem dvaldi í fjallinu á árunum 1940-1943. Fundur þýska skothylkisins í Hlíðarfjalli er sannkölluð ráðgáta.
Hér má sjá stutt myndband um fund skothylkisins í Hlíðarfjalli.






Jón Vigfússon
Gikkir skilja ekki eftir sig för á skothylkjum, það þarf alveg helvíti meingallað skotvopn eða einbeittan brotavilja notanda til að það gerist. Aftur á móti skilja skotpinnar eftir för í hvellhettum þeirra skotfæra sem þarna er um rætt. Hvorki er hægt að alhæfa að Wehrmacht eða Luftwaffe hafi eingöngu verið skipuð nasistum svo fyrirsögnin orkar tvímælis. Flest Mauser riffilskothylki sem enduðu hér á fimmta áratugnum komu merkilegt nokk frá dönum sem sendu upptækar birgðir af hvoru tveggja þýskum rifflum og skotfærum til Grænlands eftir stríð til stuðnings þarlendum veiðimönnum. Reyndar sendu þeir svo mikið þangað að við vorum enn að kaupa Mausera í koppafeiti af Grænlendingum um 1990.
Comment — August 7, 2024 @ 21:18
admin
Sæll Jón. Kærar þakkir fyrir upplýsingarnar. Þetta er hárrétt ábending hjá þér varðandi gikkinn. Að sjálfsögðu er það skotpinni sem skilur eftir far þó vissulega megi rekja það til þess að tekið er í gikkinn. Þetta er einfaldlega klaufalegt orðalag og rangt. Ég þakka þér fyrir að láta mig vita. Ég hafði ekki kveikt á perunni með þetta og hefði líklega ekki gert það nema vegna ábendingarinnar frá þér. Auðvitað er ekki hægt að alhæfa í því sem snýr að Wehrmacht eða Luftwaffe eins og þú bendir á þó líkindin verði líklega að teljast allmikil. Í greininni er ekkert útilokað þegar kemur að því að reyna að útskýra hvers vegna heilt Mauser-riffilskot frá 1937 finnst í fjallinu. Mögulegar ástæður sem nefndar eru til sögunnar eru tilgátur eins og reyndar kemur fram er í greininni. En hún hlýtur að vekja upp spurningar sú staðreynd að skotið fannst í ruslaholu frá hermönnum sem dvöldust í fjallinu á árunum 1940-1943. Skotið er úr þeirra ranni. Á því leikur enginn vafi. Eins og reyndar kemur fram í greininni. Við getum því útilokað að það hafi borist í Hlíðarfjall með flutningum frá Danmörku eftir stríð.
Comment — August 18, 2024 @ 21:29