Ráðgátan um Chevrolet Bel Air árgerð 1958

Framkvæmdir við Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit hafa staðið yfir um nokkurt skeið. Styttist óðum í að nýbygging við skólann verði tekin í notkun. Í gær unnu starfsmenn Rarik við að leggja jarðstreng í jörðu á skólalóðinni. Þeir urðu meira en lítið hissa þegar grafan kom niður á aflangan og krómaðan hlut sem minnti í fljótu bragði á stuðara af bíl. Fljótlega komu fleiri gripir í ljós svo sem járn, rafmagnsvírar og áklæði. Ekki gafst tími til að kanna svæðið nánar þar sem iðnaðarmenn voru á hlaupum við að loka skurðinum. Hvort bílhræið í heild sinn hvílir þarna eða hvort öll kurl séu komin til grafar (eða komin upp á yfirborðið) liggur ekki fyrir. Myndir voru teknar á vettvangi og hafa þær nú leitt í ljós að um er að ræða afturstuðara af Chevrolet Bel Air Station Wagon árgerð 1958.
Tegundin er af þriðju kynslóð Chevrolet Bel Air-bifreiða og var einungis framleidd þetta eina ár. Hún var lengri, lægri og þyngri en forverinn. Bíllinn var harðgerður og átti að höfða sérstaklega til hins vinnandi manns, bænda og smiða. Chevrolet Bel Air Station Wagon 1958 leikur stórt hlutverk í bandarísku kvikmyndinni „Let Him Go“ frá árinu 2020 með Kevin Costner og Diane Lane í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um sýslumann á eftirlaunum og eiginkonu hans. Eftir andlát einkasonarins gera þau víðreist um Bandaríkin í leit að barnabarni sínu. Þau ferðast um landið á bíl eins og þeim sem mögulega leynist undir yfirborði skólalóðarinnar á Hrafnagili.
Hver átti bílinn? Hvenær og hvers vegna var honum komið fyrir þarna á skólalóðinni. Þessum spurningum er enn ósvarað. Telja verður ólíklegt að bílhræið hafi verið grafið í jörðu eftir að Hrafnagilsskóli tók til starfa haustið 1971. Grenndargralið hyggst reyna að komast til botns í þessu sérstaka „bílamáli“. Ef þú lumar á upplýsingum sem varpað gætu ljósi á málið skal bent á www.grenndargral@gmail.com.

















Engar athugasemdir »
Skrifa athugasemd