Tilgáta um ljósmynd fær byr undir báða vængi

Sagnalist gerði á síðasta ári þrjá hlaðvarpsþætti í þáttaröðinni Sagnalist með Adda & Binna um norska skáldið og andspyrnuhetjuna Nordahl Grieg og eiginkonu hans, leikkonuna Gerd Grieg. Við vinnslu þáttanna fannst gömul ljósmynd af Nordahl Grieg í ramma sem safnað hafði ryki í háa herrans tíð á háalofti Menntaskólans á Akureyri. Engar upplýsingar fengust um myndina, hvenær hún barst skólanum og af hvaða tilefni. Engar merkingar er að finna, hvorki á rammanum né myndinni sem varpað gætu ljósi á málið. Ein tilgátan sem sett er fram í þáttunum er að Gerd Grieg hafi fært skólanum myndina að gjöf. Ef rétt reynist, öðlast ramminn og myndin sem í honum er nýtt og áður óþekkt vægi. Í gögnum skólans má sjá að frú Grieg kom færandi hendi þegar hún heimsótti skólann í október 1944 þó hvergi sé minnst á að hún hafi haft ljósmynd meðferðis. Tilgátan er kannski ekki svo fjarlæg þegar haft er í huga að tengsl hjónanna við skólann voru þónokkur. Nordahl hitti nemendur og starfsfólk skólans vorið 1942 á sal Gamla skóla. Heimsókn Gerd í Menntaskólann á Akureyri bar að tæpu ári eftir að Lancaster-sprengjuflugvél sem Nordahl var farþegi í var skotin niður yfir Berlín í desember 1943 með þeim afleiðingum að hann lést.
Líklega verður að teljast ólíklegt að sannleikurinn um myndina komi nokkurn tímann fram. Þó skal ekkert útilokað í þeim efnum. Við eftirgrennslan á veraldarvefnum fannst sams konar mynd á einungis einni vefsíðu. Hún er í lélegum gæðum og fylgir vefgrein sem birtist á norsku síðunni bokselskap.no. Ritstjóri síðunnar er Ellen Wiger en hún starfar einnig á Landsbókasafninu í Osló (Nasjonalbiblioteket). Grenndargralinu lék forvitni á að vita hvort þar leyndust upplýsingar um myndina og setti sig því í samband við Ellen. Í svari hennar kemur fram að eftir að henni barst fyrirspurn frá Gralinu, hafi hún leitað að umræddri mynd í stóru myndasafni Landsbókasafnsins í Osló (The National Library’s large photo catalogue) sem og í öðrum smærri myndasöfnum. Leitin hefði hins vegar ekki borið árangur. Ellen Wiger telur líklegt að hér sé um ljósmynd af Nordahl Grieg að ræða sem hafi verið í einkaeign þar til Menntaskólinn á Akureyri fékk hana að gjöf og þá líklega frá eiginkonu hans, frú Gerd Grieg. Undir skrifar Ellen Wiger, bokselskap.no. Þannig fær tilgátan byr frá Noregi. Eftir sem áður er saga ljósmyndarinnar á huldu. Grenndargralið heldur áfram leitinni.







Engar athugasemdir »
Skrifa athugasemd