Breskur hervasahnífur fannst í Hörgárdal

Breskur hervasahnífur frá stríðsárunum fannst á dögunum í Hörgárdal, á stað þar sem Bretar höfðu aðsetur á hernámsárunum. Hnífurinn má muna fífil sinn fegurri en ástand hans er þó ekki verra en svo að mynstrið á skaftinu er enn greinilegt. Mynstur sem er einkennandi fyrir vasahnífa breskra hermanna í seinni heimsstyrjöld.
Vasahnífurinn ber með sér að hafa verið í ágætis ásigkomulagi þegar hann fór á flakk í Hörgárdal á sínum tíma. Hann fannst undir grænni torfu í vegarkanti, nokkrum metrum frá breskum braggagrunni. Leiða má líkur að því að breskur hermaður hafi týnt honum á leið í eða úr bragganum sínum þar sem hnífurinn hélt svo til næstu 80 ár eða rúmlega það.
Hnífsblaðið situr fast í skaftinu og óvíst hvort hægt verði að draga það út úr rifunni. Til mikils er að vinna því líklegt er að upplýsingar um framleiðanda og ártal megi finna á blaðinu auk bresku herörvarinnar (Broad Arrow).
Margar gerðir breskra vasahnífa með þessu tiltekna mynstri voru framleiddar fyrir breska herinn í aðdraganda stríðs og á meðan á því stóð. Nær undantekningarlaust er skaftið svart á lit. Hnífurinn í Hörgárdal er einfaldur þ.e. hann hefur einungis blað og engin aukatól sem getur bent til þess að hann sé framleiddur fyrir upphaf stríðsins eða á upphafsárum þess.
Ef skoðaðar eru myndir af sambærilegum vasahnífum á netinu má sjá ákveðin líkindi með vasahnífunum á myndunum tveimur hér fyrir neðan. Ef rýnt er í hnífinn sem fannst í Hörgárdal má hins vegar sjá að hann er örlítið boginn líkt og silfurgrái hnífurinn á rauða fletinum á þriðju myndinni. Sá ber merkingarnar PROPAT. 18230/44 Sheffield.










Engar athugasemdir »
Skrifa athugasemd