Landhelgisgæslan eyddi sprengju í Hlíðarfjalli

Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar eyddi breskri sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli í dag. Varðveislumenn minjanna gengu fram á hlut í fjallinu í gær sem svipaði mjög til breskrar sprengju af gerðinni Mortar og tilkynntu þegar í stað um fundinn. Eftir að hafa ráðfært sig við Landhelgisgæsluna og sent myndir og mál suður, barst staðfesting á að um mortar-sprengju væri að ræða. Teymi sprengjusérfræðinga kom norður í gærkvöld en gekk á fjallið í morgun. Rannsóknir þeirra á staðnum staðfestu að þarna væri virk sprengja á ferðinni sem hætta stafaði af og var því ákveðið að eyða henni á staðnum. Aðgerðin heppnaðist vel. Þetta er í þriðja skipti á undanförnum fjórum árum sem sprengjudeild Landhelgisgæslunnar þeysist upp í Hlíðarfjall til að eyða sprengjum úr seinni heimsstyrjöldinni. Rétt er að taka fram að svæðið sem sprengjurnar hafa verið að finnast á er utan skíðasvæðisins og úr alfaraleið. Það breytir þó ekki því að á meðan virkar sprengjur liggja á víðavangi er hættan alltaf til staðar og rétt að fara að öllu með gát.

Engar athugasemdir »

Skrifa athugasemd