Ummerki sjást á mynd sem tekin var 11 dögum eftir slysið

Þjóðskjalasafn Bandaríkjanna (NARA – National Archives and Records Administration) lumar á fimm athyglisverðum loftmyndum af Kassos Field á Melgerðismelum í Eyjafirði. Loftmyndirnar sem eitt sinn voru hernaðarleyndarmál eru nú aðgengilegar almenningi á netinu. Þær má rekja aftur til haustsins 1942 þegar flugmenn bandaríska flughersins á Melunum máttu hafa sig alla við að fylgjast með sívaxandi umferð þýskra flugvéla í firðinum. Myndirnar, sem teknar eru úr amerískri flugvél, eru í góðum gæðum svo greina má ýmis smáatriði á jörðu niðri. Ekki verður annað séð en veðrið hafi leikið við Eyfirðinga þennan fyrsta laugardag í september 1942. Óvíst er hvort jafn skýrar yfirlitsmyndir af braggaþyrpingunni og flugbrautinni á Melgerðismelum muni nokkurn tímann koma í leitirnar úr þessu. Kannski hefur þýskum njósnaflugvélum tekist að smella af myndum sem síðar munu dúkka upp á þýskum söfnum. Hver veit?

Ein af myndunum fimm. Brotlendingarstaðurinn er ofarlega á myndinni, til hægri.

Eitt er það sem vekur sérstaka athygli við myndirnar. Þegar þær eru teknar, n.t.t. laugardaginn 5. september, eru ekki liðnir nema ellefu dagar frá mannskæðu flugslysi í Rauðhúsahólum ofan Melgerðismela. John G. Kassos, flugmaður í ameríska flughernum hóf sig til lofts þann 25. ágúst en kom aldrei til baka. Vinstri vængur vélarinnar sem hann flaug rakst í hól með þeim afleiðingum að eldur kviknaði í vélinni með tilheyrandi sprengingum en flugvélarskrokkurinn rann áfram eftir jörðinni þar til hann staðnæmdist við annan hól. Þegar rýnt er í mynd sem sýnir braggahverfið og Rauðhúsahóla, má sjá skugga sem mynda nokkurs konar rás í jörðinni á nákvæmlega þeim stað þar sem slysið átti sér stað. Greina má hreyfingar á yfirborði jarðar í beinni línu frá hólnum þar sem vinstri vængur vélarinnar skall í, að staðnum þar sem vélin nam staðar. Eftir slysið hreinsuðu félagar John Kassos svæðið með tilheyrandi jarðraski. Miðað við álagið á svæðinu í kjölfar slyssins er ekki óeðlilegt að greina megi afleiðingar þess á loftmynd sem tekin er ellefu dögum síðar.

Flugslysið í Rauðhúsahólum er dæmi um augnablik í merkilegri sögu Melgerðismela á stríðsárunum. Myndirnar á Þjóðskjalasafni Bandaríkjanna eru merkileg heimild um breytingarnar sem orðið hafa á Melunum frá því að amerískir og breskir hermenn spígsporuðu þar. Ein af myndunum fimm fangar augnablikið og það verður að teljast einstakt.

Varðveislumenn minjanna báru saman gamlar og nýjar myndir af svæðinu. Þeir hafa farið fjölmarga rannsóknarleiðangra á svæðið.

Loftmynd af svæðinu eins og það lítur út í dag. Á myndinni má sjá úr hvaða átt vél John Kassos var að koma, hólinn sem hún rakst í og staðinn þar sem vélin nam staðar.

Myndin sem tekin var 5. september 1942, ellefu dögum eftir flugslysið. Inn í svarta hringnum má sjá ummerki eftir slysið.

Engar athugasemdir »

Skrifa athugasemd