Krukkan innihélt 82 ára gamla frétt frá Chicago

Margt er skrítið í kýrhausnum. Eða kannski ruslahaugnum frekar. Við lok heyanna fundu Varðveislumenn minjanna skemmtilegan en jafnframt dularfullan grip við rannsóknir á stríðsminjum í Eyjafirði. Lítil glerkrukka gægðist í gegnum kolaleifar, ösku og gjallklumpa í stórum brennsluhaugi þar sem hún fannst innan um ryðgaða málmbúta og bráðið gler. Með ólíkindum er að krukkan hafi sloppið við „hreinsunareld“ hersins á Hrafnagili.

En þar með er ekki öll sagan sögð. Þegar betur var að gáð komu litlir bútar úr dagblaði í ljós innan í krukkunni. Þar höfðu þeir legið makindalega áratugum saman og lifað af hita, raka og annars konar eyðingaröfl náttúrunnar. Krukkan var sett í geymslu á meðan tíðarfar bauð upp á frekari rannsóknir á vettvangi. Nú þegar hillir undir lok vertíðar Varðveislumanna og stutt í kosningar beggja vegna hafsins með tilheyrandi frosti er rétt að draga fram krukkuna og smeygja henni undir smásjána. Skemmst er frá því að segja að nánari athugun á blaðsneplunum leiddi ýmislegt áhugavert í ljós. Tveir þeirra hafa reglulegt snið þ.e. eru nokkurn veginn kassalaga og því ekki rifnir úr dagblaðinu af handahófi. Verður því ekki annað séð en einhver hafi klippt út bútana og komið þeim fyrir í krukkunni áður en hún lenti í ruslahaugnum. Hvað vakti fyrir viðkomandi með föndrinu er ómögulegt að segja. Við leikum okkur með hugmyndina að þarna sé um að ræða eins konar flöskuskeyti eða tímahylki með fréttatilkynningu úr fortíðinni. Skilaboð til samtímans. Það er jú mun meira spennandi hugmynd en að enginn eða ómerkilegur tilgangur hafi legið að baki því að klippa út fyrirfram ákveðinn texta, koma honum fyrir í krukku og tryggja að rekja mætti hann til ákveðins tímabils í sögunni.

Og hvað stendur svo á þessum tveimur dagblaðabútum sem kannski hermaður, læknir eða hjúkrunarkona úr hópi starfsfólks 49th Station Hospital bandaríska hersins á Hrafnagili sendi meðvitað eða ómeðvitað til framtíðar árið 1942? Hver eru skilaboðin? Annars vegar er það nafn dagblaðsins, dagsetning og ártal. Vikudagur, mánaðardagur, mánuður og ár. Fyrir áhugafólk um sögu er erfitt að toppa slík skilaboð úr fortíðinni. Augnablik fangað og kastað út í kosmósið af sögupersónu á vályndum tímum. Andartaki síðar gripið á lofti af sögugrúskara með skóflu að vopni. Þarna er sem tíminn standi í stað. Föstudagur 24. júlí 1942. Blaðið er Chicago Herald-American, Andover 1234 „víðlesnasta síðdegisblað Chicago-borgar“ (Chicago´s Most Widely Read Evening Paper). Hins vegar er það fréttatilkynningin. Hún ber yfirskriftina „Ráðstefnu lögmanna frestað“ (Cancel Bar Convention). Efnislega segir þar frá frestun ráðstefnu á vegum félags svartra lögmanna og dómara í Bandaríkjunum (National Bar Association – NBA) sem fyrirhuguð hafði verið í næsta mánuði í Kansas.

Skilaboð úr fortíðinni verða að teljast langsótt nú þegar innihald fréttatilkynningarinnar liggur fyrir. Í fljótu bragði sést enginn augljós boðskapur til okkar sem nú lifum og hrærumst. Líklega er þetta allt saman einskær tilviljun sem á sér einfalda og mun rökréttari skýringu en tímaflakk, ferðalag milli vídda, skilaboð að handan o.s.frv. Eða hvað? National Bar Association á sér langa og merkilega sögu. Samtökin eru í dag samstarfsvettvangur tæplega 70 þúsund lögfræðinga, dómara, lagaprófessora og laganema. Frá fyrstu tíð hefur eitt meginmarkmið samtakanna verið að vernda borgaraleg og pólitísk réttindi allra ríkisborgara í Bandaríkjunum. Stofnun NBA má rekja til þess þegar svartir lögfræðingar voru á sínum tíma útilokaðir frá aðild að Lögmannafélagi Bandaríkjanna (American Bar Association – ABA). Tólf úr þeirra hópi tóku sig þá saman og stofnuðu eigin samtök. Þessi tímamótaatburður átti sér stað þann 1. ágúst árið 1925. Á heimasíðu NBA má sjá að undirbúningur fyrir stórafmæli samtakanna er í fullum gangi og niðurtalning hafin fyrir 1. ágúst 2025. Þá verðum við komin með nýja ríkisstjórn og Bandaríkin nýjan forseta. Að einhverju leyti heyjum við sömu baráttu í dag og forverar okkar árin 1925 og 1942. Eru skilaboðin í krukkunni kannski áminning til okkar um að sofna ekki á verðinum?

Krukkan áður en blaðabútarnir voru teknir úr henni.

Blaðsíða úr Chicago Herald-American, Andover 1234, dagsett 12. júní 1942.

 

National Bar Association fagnar 100 ára afmæli á næsta ári.

 

Frétt sem birtist í Íslendingi á Akureyri 24. júlí 1942, sama dag og blaðið sem bútarnir í krukkunni tilheyrðu, kom út í Chicago í Bandaríkjunum.

Engar athugasemdir »

Skrifa athugasemd