Bók sem George Schrader lét binda inn fannst í MA

Í ár verða 110 ár liðin frá andláti George H. F. Schrader, amerísks auðjöfurs sem bjó á Akureyri á öðrum áratug 20. aldar. Schrader græddi á tá og fingri í viðskiptum í Bandaríkjunum um aldamótin 1900 og var sem hann upplifði ameríska drauminn þegar hann, öllum að óvörum, ákvað að yfirgefa heimalandið fyrir fullt og allt. Hann sigldi til  smábæjar á norðanverðu Íslandi þar sem hann hugðist eyða síðustu æviárunum. Fáir ef einhverjir munir úr fórum Schrader hafa varðveist á Akureyri þrátt fyrir rúmlega þriggja ára dvöl í bænum. Fyrir síðustu jól fannst gömul bók í geymslu Menntaskólans á Akureyri sem vakti athygli fyrir fallegt band. Rannsóknir hafa nú leitt í ljós að George H. F. Schrader lét binda bókina inn í dýrt skrautband veturinn 1912-1913.

Bókin sem um ræðir heitir Travels in the Island of Iceland, during the Summer of the Year 1810. Hún er eftir Sir George Steuart Mackenzie, gefin út árið 1812 og ber stimpil Möðruvallaskóla. Þannig er hún líklega ein af þeim bókum sem skólapiltar björguðu úr brennandi skólabyggingunni árið 1902. Frá Möðruvöllum fór hún til Gagnfræðaskólans þar sem Schrader fékk hana að láni í upphafi dvalar sinnar á Akureyri. En hver er sagan á bak við dularfulla Bandaríkjamanninn George H. F. Schrader?

Sagan hefst árið 1840 þegar maður að nafni August Schrader sigldi frá Hannover í Þýskalandi til Bandaríkjanna. Hann átti sér draum um að öðlast betra líf í Ameríku eins og margir Evrópubúar á 19. öld. Átján árum síðar eignaðist hann son. Sá var skírður George H. F. Schrader. Fjórum árum eftir komuna til Ameríku stofnaði August gamli fyrirtæki sem framleiddi köfunarútbúnað, var framarlega í þróun á gúmmívörum og þróaði vörur fyrir dekkjaframleiðandann Goodyear. Árið 1890 hóf 32 ára gamall George Schrader störf hjá fyrirtæki föður síns. Varð hann fljótt aðal driffjöðurin og átti stærstan þátt í að koma því í fremstu röð í heiminum. Einn er sá hlutur sem fyrirtækið þróaði og sem komið hefur við sögu í daglegu lífi fólks í rúma öld en það er Schrader-ventillinn. George er sagður eiga mestan heiðurinn af þessari tímamótauppfinningu sem fyrirtækið kynnti til sögunnar árið 1893. Í kjölfarið fór vegur þess vaxandi í Bandaríkjunum og víðar um heim. George mokaði inn peningum, varð þekktur maður vestra og umgekkst suma af helstu viðskiptajöfrum Bandaríkjanna. Hann virtist lifa hinu fullkomna lífi en ekki er allt sem sýnist.

Nítján árum eftir markaðssetningu ventilsins og tímabil frægðar og frama sigldi Schrader til Akureyrar. Hann dvaldist í bænum frá júlí 1912 til nóvember 1915 og hélt til á Hótel Akureyri í Aðalstræti. Akureyringar voru mjög forvitnir um þennan nýja íbúa, auðjöfurinn sem hafði byrjað með tvær hendur tómar í Ameríku og grætt fúlgur fjár í viðskiptum. Hann hafði látið til sín taka á sviði mannúðar- og dýraverndunarmála í heimalandinu og átti eftir að halda því starfi áfram á Akureyri. Hann stuðlaði að bættu bæjarsamfélagi fyrir menn og málleysingja með fjárframlögum. Schrader þótti Akureyringar hirðulausir um hag sinn. Hann kenndi þeim að hugsa betur um tennurnar og að fara úr skítugum vinnugallanum eftir vinnu. Hann gaf út kverið Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum og stóð fyrir útgáfu matreiðslubókar. Þá hafði hann gaman af því að gleðja börnin í bænum. Hann bauð upp á jólaball í Samkomuhúsinu, bauð þeim í útreiðartúra og dreifði til þeirra sælgæti. Schrader var mjög svo umhugað um velferð hrossa og gaf út bók sem miðaði að því að bæta velferð þeirra. Hann gagnrýndi meðferð Íslendinga á hrossum og þótti umgengni þeirra við dýrin slæm. Úr því vildi hann bæta. Hann fjármagnaði byggingu á hesthúsi og gisitheimili á Akureyri sem hann hugsaði fyrst og fremst fyrir þá sem höfðu lítið milli handanna. Verkinu lauk í desember 1914 og afraksturinn var aðstaða fyrir 130 hross og gistirými fyrir 30 manns. Með framtakinu vildi Schrader leggja sitt af mörkum við að bæta skilyrði hestanna en um leið koma til móts við efnalitla einstaklinga. Schrader nefndi húsið Caroline Rest eftir móður sinni en það stóð við Kaupvangsstræti, í miðju Grófargili.

Örlög George H. F. Schrader vöktu á sínum tíma upp ýmsar spurningar og gera enn. Í nóvember 1915 ákvað hann að stíga um borð í bátinn Helga magra sem lá við höfnina á Akureyri og sigla af landi brott. Akureyringum var orðið ljóst að Schrader hlyti að vera haldinn illvægum sjúkdómi, slíkar voru aðfarirnar þegar hann gekk um borð í síldarbátinn. Eftir að hafa fleygt persónulegum skjölum í hafið og skipt peningum á milli áhafnarinnar mætti Schrader örlögum sínum. Þriðju nótt siglingarinnar vöknuðu áhafnarmeðlimir við skothvell en svo virðist sem Schrader hafi beitt skotvopni og síðan látið sig falla í Atlantshafið.

Skólaskýrsla Gagnfræðaskólans á Akureyri fyrir skólaárið 1912-1913 sýnir með óyggjandi hætti að George H. F. Schrader, einn ríkasti maður Bandaríkjanna í upphafi 20. aldar, skildi eftir sig „fótspor“ í Gamla skóla Menntaskólans á Akureyri. George fékk bók að láni hjá skólanum, bók sem var á hans eigin móðurmáli og illa farin, enda þá orðin 100 ára gömul og merkt Möðruvallaskóla. Þegar hann skilaði bókinni var ástand hennar orðið allt annað og betra en þegar hann fékk bókina í hendur. Segir svo í skólaskýrslu undir liðnum „Gefið band: Mr. George H. F. Schrader. Þessi ameríkanski heiðursmaður fjekk bók þessa að láni. Hún var í ljelegu bandi, en hann sendi hana aftur í dýru skrautbandi.“

Bókin lítur prýðilega út í dag, ekki síst ef tekið er mið af aldri hennar og fyrri störfum. Ekki er vitað hver batt bókina svo fagmannlega inn en hitt er víst að viðkomandi hefur vafist tunga um tönn þegar kom að enskunni. Á kili bókarinnar stendur með gylltum stöfum „Travels in the Iceland“ sem er auðvitað rangnefni. Mögulega og líklega er þetta eina eintakið af bókinni í veröld allri sem ber þennan skemmtilega titil á kili. Fyrir vikið er bókin jafnvel enn merkilegri. Travels in the Island of Iceland, during the Summer of the Year 1810, í dýru skrautbandi, fjármagnað af „ameríska Akureyringnum“ George H. F. Schrader er varðveitt í MA.

Engar athugasemdir »

Skrifa athugasemd