Áttræður óhroði frá Bandaríkjunum með appelsínugula ásjónu

Kraft Heinz Foods Company, síðar H. J. Heinz Company, nú þekkt sem Heinz er bandarískt matvælavinnslufyrirtæki með höfuðstöðvar í Pennsylvaníu. Henry J. Heinz, sonur þýskra innflytjenda en fæddur í Bandaríkjunum, stofnaði fyrirtækið árið 1869 í sömu borg. Ein fyrsta afurð fyrirtækisins sem kom á markað seint á 19. öld var tómatsósa. Í byrjun 20. aldar urðu bakaðar baunir ein vinælasta varan frá Heinz. Baunirnar slógu í gegn í Bretlandi, svo mjög að Heinz opnaði verksmiðjur þar í landi. Vörur frá Heinz voru á allra vörum í Bretlandi á þriðja áratugnum. Svo kom kreppan með tilheyrandi skorti. Heinz lagði sitt lóð á vogarskálarnar með því að bæta vöruúrvalið í breskum verslunum og á árum seinni heimsstyrjaldar kom Heinz Bretum aftur til aðstoðar þegar matarskortur gerði vart við sig að nýju. Stuðningurinn var einnig hernaðarlegs eðlis því höfuðstöðvum Heinz í Pittsburgh í Bandaríkjunum var tímabundið breytt í verksmiðju fyrir breska herinn (War Department).
Ekki alls fyrir löngu fannst glerflaska frá Heinz í „soðholu“ breska og ameríska hersins á Hrafnagili í Eyjafirði. Holan var reyndar ekki notuð til að sjóða mat heldur meira til að „sjóða“ rusl. Flaskan slapp við bráðnun svo hún lítur út eins og ný. Hér er um býsna áhugaverða flösku að ræða. Hún tilheyrir fjórðu kynslóð tómatsósuflaskna frá Heinz sem kom fram á sjónarsviðið á því herrans ári 1908. Þessi gerð var þó um það bil að syngja sitt síðasta þegar umrædd flaska var í notkun á Hrafnagili því næsta kynslóð leysti hana af árið 1948. Eðlilega eru allir merkimiðar farnir af flöskunni, þar með talinn miðinn á hálsi hennar með innihaldslýsingum: „Gerð úr sykri, salti, ediki, kryddi, lauki og ferskum tómötum. Án allra gervi-, rotvarna- og litarefna.“
Talandi um aukaefni. Af einhverjum ástæðum hefur starfsfólk Hrafnagilsspítala ekki tæmt flöskuna áður en hún endaði í ruslinu fyrir rúmum 80 árum síðan. Hún inniheldur nefnilega ennþá vænan slurk af tómatsósu. Hið náttúrulega útlit sósunnar hefur dofnað með aldrinum og breyst í slepjulegt mauk með gervilega, appelsínugula ásjónu. Það verður þó ekki af óhroðanum tekið að hann hefur staðið af sér ýmsar hræringar í litlu ruslaholunni sinni og nú er hann kominn fram á sjónarsviðið á ný eftir hlé. Einhverjar bjartsýnisraddir gætu bent á þá staðreynd að flaskan er hálffull. Látið þó ekki glepjast af útlitinu einu saman, óhroðinn er löngu kominn fram yfir síðasta söludag og best geymdur á safni.










Bylgja
Ég hélt í augnablik að þessi grein myndi fjalla um Trump, svona miðað við nafngiftina. 😀
Comment — January 6, 2025 @ 14:43
admin
Ég skil hvað þú meinar:)
Comment — February 14, 2025 @ 09:13
Þórir
Þessi flaska og innihald hennar er nú ögn geðslegri en Trumparinn, ef valið stendur á milli þeirra !
Comment — February 14, 2025 @ 10:23
admin
Líklega deilir þú þeirri skoðun með einhverjum Þórir.
Comment — February 19, 2025 @ 14:47