Þekkir þú stúlkurnar á myndinni?

Á Þjóðarbókasafni Norðmanna í Osló (National Library of Norway) má finna ljósmyndaalbúm með gömlum ljósmyndum frá Íslandi sem aðgengilegar eru á netinu. Sumar eru augljóslega teknar á Akureyri. Upplýsingar sem fylgja myndunum eru af skornum skammti en þó kemur fram að þær eru teknar á Svalbarða og á Íslandi af áhugaljósmyndara [Album med amatørbilder fra Svalbard og Island] og ártalið er 1925. Grenndargralið fann albúmið fyrir tilviljun við leit í safninu sem tengist annars konar heimildaöflun. Tvær ljósmyndir í albúminu vöktu sérstaka athygli Gralsins.

Myndin af stúlkunum tveimur í íslenskum þjóðbúningum (stúlknabúningum) er tekin við Strandgötu á Akureyri. Gralið hefur ekki upplýsingar um hverjar stúlkurnar eru. Til upplýsingar má benda á nokkur atriði í tengslum við húsin á myndinni. Eftir því sem Gralið kemst næst er húsið lengst til vinstri Strandagata 1 ( þar sem Landsbankahúsið stendur í dag), reist árið 1904. Þar var Hótel Oddeyri um tíma. Frá árinu 1924 rak Jón Sigurðsson ljósmyndastofu á efri hæðinni. Spurning hvort efra skiltið á myndinni sé á hans vegum. Verslunin Esja er á neðri hæðinni sbr. neðra skiltið. Umrætt hús var rifið árið 1949. Húsið fyrir miðju var byggt árið 1907 en brann á stríðsárunum. Í húsinu lengst til hægri var BSA til húsa frá árinu 1923. Hin myndin sýnir fólk á hestbaki, líklega ferðamenn. Nú spyr Grenndargralið. Er myndin tekin við Glerá með bæinn Rangárvelli í baksýn þar sem Endurvinnslan er í dag? Samanburðarmyndin af Rangárvöllum um vetur sem fengin er af Sarpi er tekin af Gunnlaugi P. Kristinssyni í lok sjöunda áratugarins.

Fyrir áhugasama er slóðin á gamlar myndir frá Íslandi á Þjóðarbókasafninu í Osló hér

Engar athugasemdir »

Skrifa athugasemd