Þyrilfluga vakti athygli Akureyringa í kalda stríðinu

Þyrlur koma nokkuð við sögu í fréttamyndum af eldgosinu á Reykjanesskaga. Núorðið þykir ekkert tiltökumál þótt hér sjáist til þyrlu í háloftunum en þannig hefur það ekki alltaf verið. Um miðja 20. öldina sást þyrla í fyrsta skipti á Akureyri. Heimsókn amerísku þyrlunnar – þessarar mikilfenglegu uppfinningar mannsins – hefur án vafa fyllt margan bæjarbúann stolti. Á sama tíma og farartækið sveimaði yfir bænum, var undirbúningur á lokastigi fyrir tímamótaflug tveggja þyrlna frá Bandaríkjunum yfir Atlantshafið, með viðkomu á Íslandi. Stoltið yfir hugviti og kröftum mannsandans var ekki minna úti í hinum stóra vestræna heimi.

Átök austurs og vesturs voru greinileg sumarið 1952 þegar skip úr bandaríska flotanum lá við bryggju á Akureyri. Bandaríkjamenn voru að undirbúa vetnissprengju í tilraunaskyni sem sprengja átti á Marshall-eyjum í nóvember og fyrstu vopnuðu átök Kalda stríðsins geysuðu í Kóreu. Um borð í flutningaskipinu var framandi loftfar sem notað var við leit að heppilegum stöðum til að koma upp ratsjám. Allt var þetta hluti af því að koma vörnum landsins í sem besta horf gagnvart hinu illa úr austri. Dagur greindi frá heimsókn fyrstu þyrilflugunnar til Akureyrar þann 14 júlí.

Hér kom fyrir helgina amerískt flutningaskip, tilheyrandi sjóhernum, og hafði meðferðis þyrilflugu (helicopter). Hóf flugan sig upp af þilfari skipsins hér við Torfunefsbryggju á mánudagsmorguninn og flaug síðan hér umhverfis bæinn. Er þetta í fyrsta sinn, sem slík flugvél sést á flugi hér. Flugvélin settist jafnauðveldlega á þilfar skipsins, stanzaði í loftinu í nokkurri hæð og seig síðan hægt niður á þilfarið.

Daginn eftir að bæjarbúar virtu fyrir sér þyrlu hið fyrsta sinn, hófu tvær Sikorsky-þyrlur sig til flugs frá Bandaríkjunum áleiðis til Þýskalands. Flugmenn þyrlanna Hop-A-Long og Whirl-O-Way freistuðu þess að verða fyrstir til að fljúga þyrlum austur yfir Atlantshaf, til meginlands Evrópu með viðkomu á nokkrum stöðum, m.a. á Íslandi. Markmiðið var að kanna burði þyrlnanna til langflugs. Flugið gekk stóráfallalaust fyrir sig. Þyrlurnar lentu í Keflavík þann 29. júlí en fluginu lauk í Wiesbaden þann 4. ágúst eftir 20 daga ferðalag.

Auk Keflavíkur, lentu Sikorsky-þyrlurnar í Narsarsuaq á Grænlandi og Prestwick í Skotlandi á leið þeirra yfir Atlantshafið í júlí 1952. Fjölmiðlar víða um heim fylgdust með ferð þeirra og fólk flykktist á flugvellina til að berja þær augum. Þyrilflugan sem heillaði Akureyringa í sama mánuði kom víða við á flugi sínu um Norðurland. Hún lenti m.a. í Grímsey og á íþróttavellinum á Siglufirði og vakti óskipta athygli. Nú er öldin önnur. Þyrilflugurnar sveima um eins og hverjar aðrar flugur og lenda í grennd við gosstöðvarnar. Heimsbyggðin lætur sér fátt um finnast en fyllist aðdáun yfir ógnarkröftum náttúrunnar.

 

Heimildir:

Ekki á að ganga af Grímsey. (1952, 25. júlí). Siglfirðingur, bls. 4.

Ivy Mike. (2021, 5. mars). Wikipedia. https://en.wikipedia.org/wiki/Ivy_Mike

Vinnie Devine. (2014, nóvember). Sikorsky Product History. Sótt af https://www.sikorskyarchives.com/S-55.php

Þyrilfluga yfir Akureyri. (1952, 16. júlí). Dagur, bls. 8.

Þyrilfluga á íþróttavellinum á Ísafirði. (1952, 19. júlí). Morgunblaðið, bls. 12.

Þyrilvængjum flogið í fyrsta sinn austur yfir Atlantshaf. (1952, 1. ágúst). Alþýðublaðið, bls. 7-8.

4 Athugsemdir »

  1. Baldur J. Baldursson

    Greinarhöfundur mætti taka fram að myndin með greininni er tilbúningur. Búið er að skeyta bakgrunni frá Akureyri inn á mynd frá fyrsta flugi YH-19 í BNA! Frummyndina frá fyrsta flugi YH-19 má sjá á vef Sikorsky Historical Archives
    https://sikorskyarchives.com/home/sikorsky-product-history/helicopter-innovation-era/sikorsky-s-55/

    Comment — October 17, 2025 @ 10:27

  2. admin

    Takk fyrir athugasemdina Baldur.

    Comment — January 7, 2026 @ 21:20

  3. Baldur J. Baldursson

    Höfundi greinarinnar „Þyrilfluga vakti athygli Akureyringa í kalda stríðinu“ hefur láðst að tilgreina að myndin sem fylgir greininni og sem sýnir Sikorsky H-19 þyrlu á sveimi yfir Pollinum á Akureyri er tilbúningur. Önnur gerð af þyrlu, þ.e. Sikorsky H-5, var notuð í könnunarflugi bandaríska hersins norðanlands sumarið 1952 og sem segt er frá í tilvitnaðri frétt Dags 14. júlí 1952. Til er nokkur fjöldi mynda frá umræddu könnunarflugi bandaríska hersins á Íslandi sumarið 1952, sem staðfesta hverrar gerðar þyrlan var, s.s. myndir frá lendingum þyrlunnar á Ísafirði og Húsavík

    Myndin sem fylgir greininni, og sem gefið er í skyn að sé frá fyrsta þyrlufluginu á Akureyri, hefur verið búin til með því að skeyta þekktri mynd frá fyrsta tilraunaflugi Sikorsky YH-1 þyrlu 19. nóv. 1949 í Bandaríkjunum, inn á gamla mynd frá Pollinum á Akureyri. Umrædda mynd af flugi Sikorsky YH-19 má t.d sjá á vef „Sikorsky Historical Archives“ undir liðnum „Sikorsky Product History“ þar sem í bakgrunni má sjá ótilgreinda borg í Bandaríkjunum.

    Sikorsky H-5 og Sikorsky H-19 þyrlurnar eru mjög mismunandi að gerð og stærð og ekkert sem réttlætir að rangt sé farði með gerð þeirrar þyrlu sem flaug á Akureyri sumarið 1952. Að auki er auðvitað alltaf mjög bagalegt að ekki er farið rétt með staðreyndir í grein um sögulegt málefni.

    https://sikorskyarchives.com/home/sikorsky-product-history/helicopter-innovation-era/sikorsky-s-55/

    Comment — October 18, 2025 @ 10:22

  4. admin

    Takk fyrir athugasemdina Baldur.

    Comment — January 7, 2026 @ 21:21

Skrifa athugasemd