Kristnesbækur á tilboðsverði í júní!

Um þessar mundir eru 100 ár liðin frá því að tekin var ákvörðun um að hefja söfnun til byggingar heilsuhælis á Norðurlandi. Þann 10. júní árið 1918 tóku kvenfélagskonur í Eyjafirði formlega ákvörðun um að fara af stað með söfnunina. Þar með hefst stórmerkileg saga Kristneshælis. Seinna á árinu voru sendir út söfnunarlistar um allt land og ávörp birt í blöðum til almennings. Allt gerðist þetta á fullveldisárinu með upphaf sitt í ákvörðun kvenna í hjúkrunarfélaginu Hjálpinni í Saurbæjarhreppi. Ákvörðun skilaði sér með vígslu Kristneshælis í Eyjafirði 11 árum síðar, þann 1. nóvember 1927.

Árin 2016 og 2017 gaf Grenndargralið út bækurnar Í fjarlægð og Lífið í Kristnesþorpi. Bækurnar gefa góða mynd af daglegu lífi fólks í eina öld á Kristneshæli og í Kristnesþorpi. Stór og mikil saga sem nær áratugi aftur í tímann gengur þannig í endurnýjun lífdaga í tveimur nýútgefnum bókum frá Grenndargralinu um Kristnes.

Í tilefni af aldargamalli ákvörðun eyfirskra kvenna um að hefja söfnun fyrir heilsuhæli á Norðurlandi býður Grenndargralið upp á sérstakt tilboðsverð á bókunum tveimur saman út júnímánuð, aðeins 5.990 krónur. Hægt er að panta bækur í síma 821 5948 og á facebook-síðu Grenndargralsins.

 

 

4 Athugsemdir »

  1. Sigurunn Agnarsdóttir

    Hæ Brynjar og litla-Hildur 🙂
    Væri alveg til í bækurnar. Get ég lagt inn á reikning eða hvernig hafið þið þetta?
    Kveðja, Ninný

    Comment — June 5, 2018 @ 10:58

  2. admin

    Sæl Ninný.

    Ég sendi þér tölvupóst.

    Með kveðju,
    Brynjar Karl.

    Comment — June 6, 2018 @ 14:46

  3. Bryndís

    Vil kaupa bækurnar um Kristneshæli.

    Comment — July 21, 2018 @ 12:22

  4. admin

    Sæl vertu.
    Ég sendi þér tölvupóst.
    Bestu kveðjur,
    Brynjar Karl.

    Comment — July 21, 2018 @ 18:15

Skrifa athugasemd