
Í þraut vikunnar segir frá afar merkilegri konu sem bjó á Akureyri á 19. öld. Hún batt ekki bagga sína sömu hnútum og aðrar konur heldur bauð karlaveldi þessa tíma birginn. Hvað var það sem aðalsöguhetja sjöundu þrautar gerði sem engin kona á Íslandi hafði gert áður?

Í sjöttu viku segir frá enskum fuglafræðingi sem kom til Akureyrar árið 1862. Honum þótti bærinn fábrotinn en samt einhver stórbrotnasti bær landsins!
“Sunnudagurinn var kaldur með skúraveðri, og bærinn eyðilegur að sjá. Samt er rétt að geta þess, að Akureyri er líflegasti og viðfelldnasti bærinn á Íslandi, og þar er mest athafnasemi.”
Kristján Rúnar Kristjánsson, nemandi í Síðuskóla, er handhafi Karamellukrukkunnar árið 2013. Leitin fór fram föstudaginn 18. október en þátttakendur fengu afhent umslag kl. 16:00 sem innihélt stuttan texta og kort sem gaf vísbendingu um felustað Krukkunnar. Hún var í öruggri vörslu trékarlsins stóra í Kjarnaskógi (sjá mynd). Kristján fær að launum hamborgaraveislu fyrir tvo í boði Hamborgarafabrikkunnar. Til hamingju Kristján Rúnar!
Við spurðum Kristján hvernig leitin hefði gengið.
Karamellukrukkan er fundin. Nánari fregnir af fundinum síðar.
Nú þegar Leitin að Grenndargralinu 2013 er hálfnuð er við hæfi að hita upp fyrir lokaátökin. Það gerum við með því að leita að Karamellukrukkunni.
Þeir sem skila inn réttum úrlausnum við fimm fyrstu þrautunum áður en sjötta vika hefst (fyrir föstudaginn 18. október kl. 16:00) öðlast réttinn til að leita að krukkunni góðu.
Hvað er í Karamellukrukkunni? Hvar er hún? Hverjir finna krukkuna og hljóta þann óvænta glaðning sem hún inniheldur?
Vísbending, sem leiðir til fundar Karamellukrukkunnar, verður afhend þátttakendum föstudaginn 18. október kl. 16:00.
Gangi ykkur vel!
Brynjar Karl Óttarsson, umsjónarmaður Leitarinnar
Fimmta vika Leitarinn
ar er farin af stað. Það þýðir að Leitin er hálfnuð og eins og venjulega leita þátttakendur að Karamellukrukkunni að lokinni fimmtu viku. Þeir (nemendur í 8.-10. bekk í grunnskólum Akureyrar) sem skila inn réttum úrlausnum við þrautum 1-5 áður en 6. vika hefst (föstudagur 18. október kl. 16:00) öðlast rétt til að leita að Kramellukrukkunni!!!