Ný frétt!


Bannað að vera með húfur í kennslustundum

Óþarfa leiðindi?

Ein regla í mörgum skólum er að húfunotkun sé bönnuð í kennslustundum. Skólaliðar og aðallega kennarar nota mikið af tíma í að biðja nemendur um að taka niður húfur og tuða í þeim um þessa reglu. Til hvers?

Til hvers að vera að eyða orku í þetta og búa til leiðinda móral? Jú, sumir vilja meina að það sé ókurteisi að hafa húfur inni. En ekki skaðar þetta neinn? Er þetta ekki bara ákveðið brot á nemendum? Ekki myndu kennararnir vilja að húfurnar þeirra yrðu rifnar af þeim og allt hárið stæði út í loftið, kannski nývaknaðir snemma um morguninn fyrir framan alla vini sína. Á móti koma síðan rök um að nemendur eigi að hlýða ákveðnum reglum. En nemendur þurfa að skilja af hverju þessi regla er sett og hver eru grundvallaatriðin á bak við regluna? Sumir segja líka að þetta sé bara sérviska hjá nemendum. En á nemendum ekki að líða sem best í skólanum því þar eyða þeir mestum hluta af tíma sínum? Staðreyndin er sú að sumum líður betur með húfu á hausnum og það veitir mörgum ákveðið öryggi.

Þess vegna spyr ég; því gera  kennarar stórmál úr því að einhverjir nemendur vilji hafa húfur í tíma? Truflar það kennsluna að einhver sé með húfu á hausnum? Af hverju leyfa kennarar þeim ekki bara að hafa húfur í tíma og hætta að eyða orku í svona vitleysu? Hvað næst? Verður kannski bannað að vera í sokkum í tímum? Mér finnst þetta nú bara óþarfa leiðindi.

                            Höfundur: Birta María Aðalsteinsdóttir, Giljaskóla

 

1 Athugasemd »

  1. Unnur

    Fín grein hjá Birtu Maríu. En ég spyr á móti, hefur hún aldrei fengið fyrirlestur Drífu hjúkrunarfræðings um hreinlæti hárs? Ég man ekki betur en þetta sé mikið heilbrigðisspursmál. Hár sem sífellt er falið undir húfu fær ekki það súrefni sem þarf, það fitnar og verður ógeðfellt. Ég man nú ekki fleiri rök í augnablikinu.

    Kveðja, Unnur kennari í Giljaskóla

    Comment — September 29, 2011 @ 20:42

Skrifa athugasemd