Jón og stóllinn

Flest þekkjum við myndina af Jóni Sigurðssyni þar sem hann hvílir hendur sínar á því er virðist vera útskorinn skemill með mjúku undirlagi. Myndin og eftirmyndir af upprunalegu myndinni hafa verið notaðar við fjölmörg tækifæri í eina og hálfa öld hið minnsta, á peningaseðla, frímerki, póstkort og meira að segja sem fylgimynd með hollensku súkkulaði. Ætli þetta sé ekki sú mynd af sjálfstæðishetjunni sem flest okkar þekkjum, kannski einhver frægasta pósa íslenskrar ljósmyndasögu?
Upplýsingar um myndina liggja ekki á lausu. Líklega vegna þess að sáralítið er vitað um hana, hvaða ár hún var tekin, hvernig umhverfið var í kringum Jón þar sem hann sat fyrir og hvernig meintur skemill leit út sem við sjáum rétt aðeins glitta í á myndinni. Eða er þetta yfirhöfuð skemill eða eitthvað allt annað? Kannski stóll og ef svo, hvernig leit hann út? Áhugi Gralsins á myndinni af Jóni kviknaði í kjölfar rannsóknar á gamalli bók sem fannst í Menntaskólanum á Akureyri. Jón kemur þar við sögu og þannig fór boltinn að rúlla.
Til að forvitnast um hvaða vitneskja lægi nú þegar fyrir um myndina, hafði Gralið samband við Guðjón Friðriksson sagnfræðing og rithöfund og Ingu Láru Baldvinsdóttur sviðstjóra Ljósmyndasafns Íslands til margra ára. Inga Lára segir myndina ekki vera hluta af myndaseríu heldur staka mynd eins og henni var ætlað að vera þ.e. mynd af manni í nærmynd. Af því leiðir að engin önnur mynd sé til sem sýni bólstrað trévirkið sem Jón hallar sér upp að. Við höfum því líklega alltaf bara séð toppinn af ísjakanum. Hún sendi Gralinu mynd af frummyndinni, eða allavega því sem kemst næst því að vera orginallinn, samtímamynd getum við sagt, sem er til á Þjóðminjasafninu og er aðgengileg á sarpinum. Þar kemur fram að myndin sé tekin á árunum 1860-1879. Það er ansi langt tímabil. Á bakhliðinni er nafn og merki ljósmyndarans Emil Lange sem voru góð tíðindi því Gralið hafði áður í rannsóknum sínum á bókinni í MA rekist á ljósmynd af óþekktri danskri stúlku þar sem greina mátti kunnuglegan hlut við bak stúlkunnar, nokkurs konar púða með skrauti á hliðum. Kom í ljós að myndasmiður þeirrar myndar hét Emil Lange.

Frá vinstri: Óþekkt dönsk stúlka á ljósmyndastofu E. Lange. Emil Lange á stólnum umrædda. Jón Sigurðsson með pípuhatt.
Nú var leitin þrengd. Fleiri myndir frá ljósmyndastofu E. Lange komu í leitirnar og smám saman kom hinn fallegasti stóll í ljós, í allri sinni dýrð, útskorinn og veglegur. Ísjakinn sem hafði marrað í kafi undir yfirborðinu allan þennan tíma var skyndilega orðinn sýnilegri. Svo skemmtilega vill til að besta myndin af stólnum hans Jóns sem Gralið fann á netinu sýnir ljósmyndarann Emil Lange, þann sem tók myndina frægu af Jóni, sitjandi á stólnum með vindil í hendi. Hann er sennilega ekki í ósvipaðri stellingu og Jón var sjálfur þegar Lange smellti af á ljósmyndastofu sinni við Östergade 24 í Kaupmannahöfn. Merkingar ljósmyndarans aftan á myndum frá honum eru ólíkar milli ára. Þegar rýnt er í merkið aftan á myndinni á Þjóðminjasafninu má greina litla mynd sem sýnir verðlaunaafhendingu og merkingar á latínu „1862 Londini Honoris Causa“ sem við getum þýtt sem „1862 London fyrir heiðurs sakir.“ Þarna er vísað til verðlauna sem Emil Lange hlaut á Heimssýningunni í London árið 1862. Gralið hafði samband við Ann Vibeke Knudsen safnstjóra og ljósmyndasagnfræðing (photohistoriker) í Borgundarhólmi. Hún er allra fróðust um myndir danskra ljósmyndara á 19. öld. Hún tjáði mér að myndir Emil Lange sem hafa þetta tiltekna merki (logo) á bakhliðinni séu teknar 1862-1863. Þá vitum við það. Myndin er rúmlega 160 ára gömul og Jón því rétt rúmlega fimmtugur þegar hún er tekin.

Eins og við vitum var Jón mikið á ferðalagi milli Íslands og Danmerkur á þessum árum. Heimildir sýna að hann var í Kaupmannahöfn á þeim tíma sem Lange notaðist við umrætt merki og ekki þurfti hann að fara um langan veg til að láta smella af sér mynd. Jón bjó á Øster Voldgade sem er í u.þ.b. 20 mínútna göngufjarlægð frá Östergade þar sem Lange var með stúdíó. Svo. Við vitum núna hvenær myndin var tekin og hvernig skemillinn leit út í heild sinni sem reyndist vera stóll með nokkuð sérkennilegt bak. Þá er bara ein spurning eftir, hvernig umhverfið var í kringum Jón þegar myndin var tekin. Gralið sá sér leik á borði, hafandi undir höndum mynd af Lange á stólnum þar sem hann sést frá toppi til táar, prófaði að skeyta saman myndunum tveimur, fræsa af og lita og sjá hvort þær pössuðu saman. Útkoman er ekki svo galin. Þetta er fyrst og fremst til gamans gert svo við getum séð fyrir okkur hvað gæti hafa blasað við Emil Lange þegar hann stóð fyrir aftan myndavélina með Jón fyrir framan sig á stólnum. Engin sagnfræðileg sönnun sem felst í þessu og engin gervigreind notuð hér, aðeins „copy paste“ og litir.






Engar athugasemdir »
Skrifa athugasemd