main image

Jón og stóllinn

Flest þekkjum við myndina af Jóni Sigurðssyni þar sem hann hvílir hendur sínar á því er virðist vera útskorinn skemill með mjúku undirlagi. Myndin og eftirmyndir af upprunalegu myndinni hafa verið notaðar við fjölmörg tækifæri í eina og hálfa öld hið minnsta, á peningaseðla, frímerki, póstkort og meira að segja sem fylgimynd með hollensku súkkulaði. Ætli þetta sé ekki sú mynd af sjálfstæðishetjunni sem flest okkar þekkjum, kannski einhver frægasta pósa íslenskrar ljósmyndasögu?

Upplýsingar um myndina liggja ekki á lausu. Líklega vegna þess að sáralítið er vitað um hana, hvaða ár hún var tekin, hvernig umhverfið var í kringum Jón þar sem hann sat fyrir og hvernig meintur skemill leit út sem við sjáum rétt aðeins glitta í á myndinni. Eða er þetta yfirhöfuð skemill eða eitthvað allt annað? Kannski stóll og ef svo, hvernig leit hann út? Áhugi Gralsins á myndinni af Jóni kviknaði í kjölfar  rannsóknar á gamalli bók sem fannst í Menntaskólanum á Akureyri. Jón kemur þar við sögu og þannig fór boltinn að rúlla.

Til að forvitnast um hvaða vitneskja lægi nú þegar fyrir um myndina, hafði Gralið samband við Guðjón Friðriksson sagnfræðing og rithöfund og Ingu Láru Baldvinsdóttur sviðstjóra Ljósmyndasafns Íslands til margra ára. Inga Lára segir myndina ekki vera hluta af myndaseríu heldur staka mynd eins og henni var ætlað að vera þ.e. mynd af manni í nærmynd. Af því leiðir að engin önnur mynd sé til sem sýni bólstrað trévirkið sem Jón hallar sér upp að. Við höfum því líklega alltaf bara séð toppinn af ísjakanum. Hún sendi Gralinu mynd af frummyndinni, eða allavega því sem kemst næst því að vera orginallinn, samtímamynd getum við sagt, sem er til á Þjóðminjasafninu og er aðgengileg á sarpinum. Þar kemur fram að myndin sé tekin á árunum 1860-1879. Það er ansi langt tímabil. Á bakhliðinni er nafn og merki ljósmyndarans Emil Lange sem voru góð tíðindi því Gralið hafði áður í rannsóknum sínum á bókinni í MA rekist á ljósmynd af óþekktri danskri stúlku þar sem greina mátti kunnuglegan hlut við bak stúlkunnar, nokkurs konar púða með skrauti á hliðum. Kom í ljós að myndasmiður þeirrar myndar hét Emil Lange.

Frá vinstri: Óþekkt dönsk stúlka á ljósmyndastofu E. Lange. Emil Lange á stólnum umrædda. Jón Sigurðsson með pípuhatt.

Nú var leitin þrengd. Fleiri myndir frá ljósmyndastofu E. Lange komu í leitirnar og smám saman kom hinn fallegasti stóll í ljós, í allri sinni dýrð, útskorinn og veglegur. Ísjakinn sem hafði marrað í kafi undir yfirborðinu allan þennan tíma var skyndilega orðinn sýnilegri. Svo skemmtilega vill til að besta myndin af stólnum hans Jóns sem Gralið fann á netinu sýnir ljósmyndarann Emil Lange, þann sem tók myndina frægu af Jóni, sitjandi á stólnum með vindil í hendi. Hann er sennilega ekki í ósvipaðri stellingu og Jón var sjálfur þegar Lange smellti af á ljósmyndastofu sinni við Östergade 24 í Kaupmannahöfn. Merkingar ljósmyndarans aftan á myndum frá honum eru ólíkar milli ára. Þegar rýnt er í merkið aftan á myndinni á Þjóðminjasafninu má greina litla mynd sem sýnir verðlaunaafhendingu og merkingar á latínu „1862 Londini Honoris Causa“ sem við getum þýtt sem „1862 London fyrir heiðurs sakir.“ Þarna er vísað til verðlauna sem Emil Lange hlaut á Heimssýningunni í London árið 1862. Gralið hafði samband við Ann Vibeke Knudsen safnstjóra og ljósmyndasagnfræðing (photohistoriker) í Borgundarhólmi. Hún er allra fróðust um myndir danskra ljósmyndara á 19. öld. Hún tjáði mér að myndir Emil Lange sem hafa þetta tiltekna merki (logo) á bakhliðinni séu teknar 1862-1863. Þá vitum við það. Myndin er rúmlega 160 ára gömul og Jón því rétt rúmlega fimmtugur þegar hún er tekin.

Eins og við vitum var Jón mikið á ferðalagi milli Íslands og Danmerkur á þessum árum. Heimildir sýna að hann var í Kaupmannahöfn á þeim tíma sem Lange notaðist við umrætt merki og ekki þurfti hann að fara um langan veg til að láta smella af sér mynd. Jón bjó á Øster Voldgade sem er í u.þ.b. 20 mínútna göngufjarlægð frá Östergade þar sem Lange var með stúdíó. Svo. Við vitum núna hvenær myndin var tekin og hvernig skemillinn leit út í heild sinni sem reyndist vera stóll með nokkuð sérkennilegt bak. Þá er bara ein spurning eftir, hvernig umhverfið var í kringum Jón þegar myndin var tekin. Gralið sá sér leik á borði, hafandi undir höndum mynd af Lange á stólnum þar sem hann sést frá toppi til táar, prófaði að skeyta saman myndunum tveimur, fræsa af og lita og sjá hvort þær pössuðu saman. Útkoman er ekki svo galin. Þetta er fyrst og fremst til gamans gert svo við getum séð fyrir okkur hvað gæti hafa blasað við Emil Lange þegar hann stóð fyrir aftan myndavélina með Jón fyrir framan sig á stólnum. Engin sagnfræðileg sönnun sem felst í þessu og engin gervigreind notuð hér, aðeins „copy paste“ og litir.

Hér er slóð á stutt myndband sem sýnir afraksturinn.

Friðriksgáfa 17. febrúar 1869 – Eggert og Elín

Amtmannssetrið Friðriksgáfa á Möðruvöllum í Hörgárdal hefur heillað söguáhugafólk og veitt listamönnum innblástur í 150 ár. Frederiksgave var gjöf Friðriks VI. Danakonungs, reist árið 1829 en brann til kaldra kola vorið 1874. Telja verður harla ólíklegt að hlutir sem eitt sinn tilheyrðu Friðriksgáfu komi í leitirnar úr þessu, í ljósi umfangs eldsvoðans og tímans sem liðinn er. En lengi er von á einum. Við athuganir í geymslu Menntaskólans á Akureyri fannst gömul bók með áritun sem rekja má til hins sögufræga amtmannsbústaðar. Grenndargralið segir sögurnar á bak við bókina og reynir að komast að því hver er ábyrgur fyrir hinni dularfullu áritun. Við sögu koma héraðslæknir, fátækur skrifari og vel stæð amtmannshjón, umboðsmaður klausturjarða og dauðvona eiginkona hans.

Eggert Gunnarsson var fæddur í Laufási við Eyjafjörð 23. júlí 1840. Hann var yngri bróðir Kristjönu amtmannsfrúar á Möðruvöllum. Þegar hún flutti inn í Friðriksgáfu 1857 bjó Eggert hjá móður þeirra og stjúpa að Hálsi í Fnjóskadal. Eggert bjó um þriggja ára skeið í Friðriksgáfu hjá Kristjönu og Pétri, frá 1860 til 1863 sem útskýrir líklega kunningsskap hans við Svein Þórarinsson amtskrifara. Sumarið 1862 ferðuðust þeir mágar Eggert og Pétur saman til Kaupmannahafnar þar sem amtmaðurinn dvaldi sér til heilsubótar. Milli þeirra skapaðist mikil og góð vinátta sem aldrei bar skugga á þrátt fyrir skapgerðargalla amtmannsins og á köflum leiðinlega framkomu hans við Kristjönu. Þáttaskil urðu í lífi Eggerts árið 1864 þegar Pétur gerði hann að umboðsmanni Munkaþverárklaustursjarða og Legatsjóðsjarða í Eyjafjarðarsýslu. Eggert sinnti starfinu til ársins 1882.

Háls í Fnjóskadal árið 1896. Teikning eftir Daniel Bruun.

Frá Möðruvöllum fór Eggert til bróður síns Tryggva á Hallgilsstöðum og var þar til ársins 1866. Þar gerðist hann ráðsmaður í fjarveru Tryggva sem dvaldist í Danmörku með eiginkonu sinni Halldóru Þorsteinsdóttur. Tryggvi og Halldóra voru jafnframt stjúpsystkin. Hún var lasburða og freistuðu hjónin þess að fá bót meina sinna í Kaupmannahöfn. Eftir vistina á Hallgilsstöðum keypti Eggert jörðina Espihól í Eyjafjarðarsveit. Um það leyti sem hann var að koma sér fyrir á nýja óðalinu kynntist hann Elínu Sigríði Ólsen. Elín var systir hins kunna háskólarektors Björns M. Ólsen, fædd að Þingeyrum í Austur-Húnavatnssýslu 11. júní 1848. Eftir að faðir hennar lést flutti hún með móður sinni að Stóruborg í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu. Sextán ára gamalli Elínu er lýst svo í Eyfirðingabók Benjamíns Kristjánssonar sem kom út árið 1968:

„Hún var grannvaxin og liðleg í öllum hreyfingum, föllituð í andliti, með spor í höku. Hversdagslega var hún kát og glaðlynd, en skipti fljótt skapi. Yfir andlitinu hvíldi blíðlegur og barnslegur þokki, sem blandaðist glettni og fjöri. Komið gat það fyrir, að hún brysti skyndilega í grát, er hún kvaddi þá, sem henni þótti vænt um. Svo örar voru tilfinningar hennar.“

Fundum Elínar og Eggerts bar fyrst saman á heimaslóðum hennar þar sem hann var gestkomandi. Það var ást við fyrstu sýn, hún 18 ára en hann 26 ára. Ástarbréf sem gengu á milli þeirra haustið 1866 á meðan Elín sat í festum bera þess glöggt vitni. Í einu bréfanna skrifar Elín svo: „Hringurinn er alveg mátulegur. En blessaður láttu nú taka af þér mynd, áður en langt um líður. Mig langar svo mikið til að eiga mynd af þér.“

Eggert og Elín. Myndin af Eggerti er tekin af ljósmyndaranum Christian Rasmus Neuhaus á ljósmyndastofu hans í Kaupmannahöfn. Er þetta myndin sem fylgdi Elínu í gröfina sbr. dagbók Sveins Þórarinssonar eða er hún tekin seinna? Hér er ef til vill komin myndin sem Elín bað um af sínum heittelskaða í bréfi haustið 1866. Uppruni myndarinnar af Elínu er óljós. Hún birtist í Eyfirðingabók Benjamíns Kristjánssonar.

Ekki leið langur tími þar til Eggert og Elín festu ráð sitt. Brúðkaup þeirra fór fram 12. júlí 1867 að Stóruborg. Margt góðra gesta mætti til veislunnar sem var hin veglegasta. Meðal brúðkaupsgesta voru Tryggvi bróðir brúðgumans, Þórunn dóttir Péturs Havsteen og Benedicte Arnesen Kall, þekkt skáldkona frá Danmörku sem kom sérstaklega til að hitta Eggert og annað skyldfólk hennar af Briem-ættinni. Áttu þær Benedicte og Elín góðar samverustundir á meðan dvöl þeirra dönsku stóð sumarið 1867. Amtmannshjónin á Möðruvöllum, Pétur og Kristjana mættu ekki til veislunnar. Eftir brúðkaupið að Stóruborg hófust hveitibrauðsdagar á Espihóli. Eggert og Elín voru ástfangin upp fyrir haus og lífið blasti við þeim. Eggert var stórhuga, búskapurinn á Espihóli þandist út og hann hafði stóran hóp vinnufólks á sínum snærum. Í þeim hópi var ungur og efnilegur piltur frá Möðruvöllum í Hörgárdal, Jón sonur Sveins Þórarinssonar amtskrifara. Nonni var snúningspiltur á Espihóli í tæp tvö ár frá hausti 1867.

Mynd af Espihóli, tekin um 1895-97. Myndin sýnir bæinn að öllu eða mestu leyti eins og hann leit út á búskaparárum Eggerts og Elínar til ársins 1869.

Ungu hjónunum á Espihóli fæddist dóttir í maílok 1868. Hún var skírð Valgerður Ingunn. En nú voru blikur á lofti. Eftir erfiða meðgöngu fór að bera á dularfullum veikindum hjá Elínu og ekki var til bóta að Eggert var mikið að heiman í tengslum við fjölmörg störf sem hann tók sér fyrir hendur. Þórður héraðslæknir reyndi að sefa sorgir og þjáningar húsfreyjunnar ungu með reglulegum heimsóknum. Elín skrifaði bréf til Eggerts í júní, nokkrum dögum áður en hún fagnaði tvítugsafmæli sínu:

„Elsku bezta hjartað mitt. Svoleiðis er nú mál með vexti, að ég fékk boð frá Rósu (í Öxnafelli, ljósmóðurinni) svolátandi, að þessi seini bati minn gæti komið af því, að engin mjólk hefði komið í brjóstin, og ráðlagði hún mér því að fara til læknis og spyrja ráða í því efni. Þú getur talað um þetta við hann, ef þér sýnist, og fel ég þér það alveg, elskan mín. Okkur jómfrúnum þínum líður við það sama að mestu leyti nema hvað litla dóttirin er búin að fá dálítið kvef, en ég vona að það geti ekki verið mikið hættulegt. Ég skal reyna að bera mig karlmannlega þangað til þú kemur, hvernig sem það tekst, og á nú líka von á þér á fimmtudaginn. Þú munt muna eftir tvítuga kappanum þínum![…]. Guð leiði þig farsællega í faðm minn á ný.

Þín – þín fram í dauðann elskandi litla kona,

Elín.“ 

Óveðursský fóru nú að hrannast upp á Espihóli. Enn var óljóst hvað olli veikindum Elínar sem færðust í aukana og metnaðarfull búskaparáform Eggerts gengu ekki sem skyldi.

Opna úr dagbók Eggerts Gunnarssonar frá 1862. Bókin er varðveitt á Landsbókasafni Íslands Háskólabókasafni.

Eggert sat yfir Elínu um jól og áramót. Örvæntingafullur skrifaði hann læknum í von um ráðleggingar. Þórður lagði sín lóð á vogarskálarnar og ferðum hans að Espihóli fjölgaði jafnt og þétt eftir því sem veikindin ágerðust. Þann 3. janúar 1869 skrifar Sveinn Þórarinsson í dagbók sína;  „…í dag var læknirinn soktur handa konu Eggerts Gunnarssonar sem liggur rænulaus.“ Þórður gerði hvað hann gat til að bjarga lífi Elínar en hafði ekki erindi sem erfiði. Sveinn skráir í dagbókina þann 19. janúar: „Magnús á Espihóli sókti læknirinn, hafði Elín kona E. O. Gunnarssonar andast í fyrradag eptir sína löngu legu.“ Elín Sigríður lést sunnudaginn 17. janúar á heimili sínu, mánuði upp á dag áður en Chemische Briefe var árituð í Friðriksgáfu. Krufning leiddi í ljós að Elín þjáðist af hastarlegri lungnatæringu sem dró hana á endanum til dauða. Lungu hennar voru bólgin og skemmd og miltað illa farið. Ættingjar Elínar á Stóruborg glímdu margir hverjir við sömu veikindi.

Grunnteikning af Espihóli eftir Jónas Rafnar lækni. (a) bæjardyr (b) göng (c) tvíhólfa baðstofa (d) litla stofa (e) búr (f) eldhús (g) litla búr (h) klefi (i) stofa (j) skáli (k) skemma (l) smiðja. Í einhverju þessara rýma háði Elín baráttu gegn veikindum sem drógu hana til dauða 17. janúar 1869.

Sveinn amtskrifari var við útförina og lýsir henni, aðdraganda hennar og eftirmála með nokkuð ítarlegum hætti í dagbók sinni. Hefst frásögnin mánudaginn 1. febrúar; „…og undirbjó ferð mína framm að Espihóli á morgun í útfararveislu, ef veður leyfir.“ Daginn eftir fékk Sveinn lánaðan hest og reið ásamt hópi manna frá Akureyri að Espihóli í 15 gráðu frosti. Þar dvaldi hópurinn næturlangt í góðu yfirlæti að sögn Sveins. Elín var borin til grafar miðvikudaginn 3. febrúar í „sunnan golu, frostgrimd og bjartviðri.“ Margt var um manninn á Espihóli um morguninn og „öllum stórmannlega veitt.“ Því næst hélt presturinn húskveðju yfir líkkistunni opinni.

„…hafði Eggert látið í kistuna hjá líkinu gullkross, mynd sína og sálmabók í [skraut]bandi. Síðan var líkinu ekið framm að Grund, og gekk ég og margir aðrir þangað en sumir biðu. Þar fluttu þeir próf. D[aníel]. Halldórsson, sra Jón Thorlacius og sra Sigurgeir sína líkræðuna hver í kirkjunni og sra Þórður þá fjórðu við gröfina, sem var með stórum og sterkum trékassa utanum kistuna sem lokað varð utanum hana. Mér og fleyrum varð kalt mjög við gröfina. Eftir greftrunina fórum við allir að Espihóli og þáðum dýrðlega veizlu með púnsdrykk […] á eftir. Og var þar svo með 18 næturgestum um nóttina.“ 

Fimmtudagurinn 4. febrúar var heimfarardagur. „Við næturgestir sátum aptur í ríkmannlegri veizlu á Espihóli og héldum svo heimleiðis í hóp. Ég þoldi ekki að hristast á hestinum hafði sára pínu í bakinu Við komum við á Kjarna, Eggert og vestanmenn riðu með á Brunnáreyrarnar. Jón litli sonur minn á Espihóli gaf mér 1rdl [ríkisdal]. Sem hann fjekk fyrir hestapössun.“ Eggert og Sveinn hittust aftur rúmum tveimur vikum eftir jarðarförina. „19. febrúar 1869. Norðan gola, dimmt og þokufullt lopt. Eg var mjög lasin tók inn 2 morphinpillur til að geta haldið út við barnakennsluna, hafði 9 á skóla. Eggert Gunnarsson kom hér og conciperaði eg fyrir hann eitt bréf til Justitsministeriet.“

Elín Sigríður Ólesn hvílir í Grundarkirkjugarði í Eyjafirði. Með í hennar hinstu för var sálmabók, gullkross og mynd. Eggert sendi frænku sinni Benedicte Arnesen Kall bréf til Danmerkur með tíðindum af andláti Elínar sem setti saman sorgarljóð til minningar um góða vinkonu.

Sorgin knúði dyra á ný hjá Eggerti um vorið. Valgerður Ingunn var eins árs gömul þegar hún kvaddi í júní. Dagbók Sveins 13. júní 1869: „Eggert Gunnarsson kom að vestan, búin að þinga í Skagafjarðarsýslu, frétti hér að dóttir hans og einka barn hefði andast í nótt, hann kom hér við og reið heim.“ Valgerður litla var jarðsett hjá móður sinni í Grundarkirkjugarði. Eftir röð áfalla undi Eggert sér ekki á Espihóli, færði sig um set og hóf störf hjá  sýslumanninum í Skagafirði. Næstu árin var hann mikið á ferðinni jafnt innanlands sem utan og sinnti margvíslegum störfum. Hann var um tíma kaupstjóri á Akureyri, bóndi á Laugalandi í nokkur ár frá árinu 1876 þar sem hann beitti sér fyrir stofnun Kvennaskóla og alþingismaður 1875–1880. Hann vann að undirbúningi að stofnun Gránufélagsins og var annar tveggja sem áttu hvað stærstan þátt í stofnun Möðruvallaskóla. Hann var upphafsmaður Framfarafélags Eyjafjarðar og stóð fyrir samtökum til að ræsa fram Staðarbyggðarmýrar í Eyjafirði. Eggert dvaldi mikið í Reykjavík eftir 1880. Þar rak hann verslun og kom að stofnun ýmissa félaga m.a. Bresk-íslenska verslunarfélagsins. Hvort kenna megi óhóflegu álagi og djúpstæðri sorg um hvernig fór fyrir Eggerti skal ósagt látið. Hitt er víst að Eggert átti í fjárhagsvandræðum og stóð ekki undir fjárhagslegum skuldbindingum sínum. Örlög Eggerts eru óljós. Hann fór af landi brott árið 1884 og hvarf, líklega í Bandaríkjunum. Til hans hefur ekki spurst síðan.

Sumir úr hópi viðskiptavina Eggerts hugsuðu honum þegjandi þörfina þegar hann lét sig hverfa án þess að standa við skuldbindingar sínar.

Eggert Gunnarsson og Þórður Tómasson áttu í miklum samskiptum áður en kom að áritun Chemische Briefe í Friðriksgáfu 17. febrúar 1869. Þau samskipti komu ekki til af góðu en voru náin í ljósi aðstæðna. Eggert bar sterkar taugar til Friðriksgáfu og ekki ólíklegt að hann hafi lagt leið sína þangað eins oft og nokkur kostur var. Er hugsanlegt að aðkoma Þórðar í erfiðum veikindum Elínar um nokkurra mánaða skeið tengist bókinni með einhverjum hætti eða er það einskær hending að bókin er árituð mánuði upp á dag eftir andlát hennar? Líklega er um tilviljun að ræða.

Friðriksgáfa 17. febrúar 1869 – Amtmannsfrúin

Amtmannssetrið Friðriksgáfa á Möðruvöllum í Hörgárdal hefur heillað söguáhugafólk og veitt listamönnum innblástur í 150 ár. Frederiksgave var gjöf Friðriks VI. Danakonungs, reist árið 1829 en brann til kaldra kola vorið 1874. Telja verður harla ólíklegt að hlutir sem eitt sinn tilheyrðu Friðriksgáfu komi í leitirnar úr þessu, í ljósi umfangs eldsvoðans og tímans sem liðinn er. En lengi er von á einum. Við athuganir í geymslu Menntaskólans á Akureyri fannst gömul bók með áritun sem rekja má til hins sögufræga amtmannsbústaðar. Grenndargralið segir sögurnar á bak við bókina og reynir að komast að því hver er ábyrgur fyrir hinni dularfullu áritun. Við sögu koma héraðslæknir, fátækur skrifari og vel stæð amtmannshjón, umboðsmaður klausturjarða og dauðvona eiginkona hans.

Spurt er hver sé ábyrgur fyrir hinni dularfullu áritun? Koma fleiri til greina en þeir sem nefndir hafa verið til sögunnar, héraðslæknir, amtskrifari og amtmaður? Hvað með amtmannsfrúna, var það kannski hún sem mundaði pennann? Var eitthvað við heilsufar Katrínar Kristjönu Gunnarsdóttur Havstein (1836-1927) sem kallaði á heimsókn héraðslæknis í Friðriksgáfu í febrúar 1869? Sambúðin með veikum amtmanni var Kristjönu vissulega oft og tíðum erfið. Hjónabandið litaðist að einhverju leyti af ráðríki og ofbeldi sem rekja mátti til vanheilsu Péturs. Tíðar barneignir og barnamissir hefur og sennilega ekki dregið úr hugrænni byrði frúarinnar í Friðriksgáfu. Frá því að Kristjana flutti inn í amtmannsbústaðinn 1857 og til ársins 1868, fæddi hún átta börn í þennan heim, þar af tvíbura árið 1867. Sjálf var hún fædd í Laufási í Suður-Þingeyjarsýslu, dóttir Gunnars Gunnarssonar prests og Jóhönnu Kristjönu Gunnlaugsdóttur Briem. Hún átti fjóra bræður, Tryggva, Gunnar, Eggert og Geirfinn. Amma hennar og afi í móðurætt voru Gunnlaugur Briem (1773-1834) sýslumaður í Kjarna við Akureyri og á Grund í Eyjafirði og Valgerður Briem (1779-1872), gjarnan kölluð frúin á Grund.

Kristjana, móðir og stjúpfaðir, amma og afi í móðurætt

Fjölskylda Kristjönu óttaðist um sálarheill hennar eftir mörg erfið ár hjá þeim hjónum í Friðriksgáfu. Eftir samráð nánustu aðstandenda amtmannsfrúarinnar í ársbyrjun 1868, á heimili bróður hennar, Tryggva bónda á Hallgilsstöðum, var ákveðið að freista þess að flytja hana og börnin brott úr Friðriksgáfu. Nokkrum sinnum með nokkurra daga millibili í febrúarmánuði reið Tryggvi í hlað á Möðruvöllum en hafði ekki erindi sem erfiði. Kristjana var ekki tilbúin að yfirgefa amtmanninn. Hún leit á það sem skyldu sína að standa með eiginmanni sínum í veikindum hans auk þess sem hún bar enn sterkar tilfinningar í hans garð þrátt fyrir allt sem á undan hafði gengið. Og víst er að Pétur elskaði Kristjönu þó að lundin væri honum á stundum erfið. Atburðirnir í febrúar 1868 ristu djúpt í hugum Péturs og Tryggva, svo mjög að aldrei greri um heilt með þeim mágum. Höfum hugfast að atburðarás þessi átti sér stað aðeins ári áður en Þingeyingar sömdu ákæruskjal undir forystu Tryggva á hendur Pétri. Hið góða sem af þessu inngripi Tryggva hlaust voru bætt samskipti hjónanna í Friðriksgáfu. Reyndar var um tímabundið ástand að ræða því fljótlega kom enn eitt barnið undir hjá þeim hjónum og það var ávísun á skapgerðarbresti Péturs. Þorsteinn Pálsson var stjúpfaðir Kristjönu og bóndi á Hálsi í Fnjóskadal. Hann skrifaði bréf síðla sumars 1868 og ef marka má innihald bréfsins virðist sem þungun amtmannsfrúarinnar hafi ávallt lagst sérlega illa í amtmanninn. „Eigi batnar á Gáfu. Karl er nú aftur verri við konu sína en um tíma en svo hefur jafnan verið er hún hefur verið vanfær.“

Tryggvi Gunnarsson reið á milli Hallgilsstaða og Möðruvalla til að freista þess að “bjarga” systur sinni úr klóm amtmannsins.

Meðgangan gekk ekki þrautalaust fyrir sig en svo kom að því að Kristjana varð léttari. Hún fæddi fallegt stúlkubarn sem fékk nafnið Elín. Elín Havstein (1869-1900) fæddist 2. febrúar 1869, tveimur vikum og degi betur áður en bók Þórðar Tómassonar læknis, Chemische Briefe, var árituð í Friðriksgáfu. Fæðingin reyndist Kristjönu erfið og var hún slæm til heilsunnar í þónokkurn tíma á eftir. Á meðan Kristjana lá sængurleguna og safnaði kröftum eftir barnsburðinn skrifaði stjúpsystir hennar, Hólmfríður Þorsteinsdóttir á Bægisá í Hörgárdal, bréf til frænku sinnar. Hún nefnir amtmanninn til sögunnar og vandar honum ekki kveðjurnar. Bréfið er dagsett 21. febrúar. „… stundum þegar fínir gestir koma þá kem ég aldrei á þeirra fund, ef þeir hins vegar eru mér á móti skapi. Þegar Havstein vondi kemur þá sendi ég þessar mínar griðkur [griðkonur, vinnukonur] til hans en tvisvar í sumar hitti hann svo á að Arnljótur [Ólafsson, prestur og eiginmaður Hólmfríðar] var ekki heima og þá lét ég ekki bjóða honum inn, svo hann varð að snauta til baka sem sneyptur hundur.“

Til vinstri: Elín Havstein dóttir Kristjönu og Péturs. Eiginmaður hennar var Lárus H. Bjarnason. Til hægri: Elín með mágkonu sinni Ingibjörgu H. Bjarnason. Myndirnar eru í eigu Þjóðminjasafnsins.

Ekki leið langur tími frá því að Elín litla kom í heiminn og þar til föður hennar var vikið frá störfum. Eftir embættismissinn flutti fjölskyldan að Ytri-Skjaldarvík ekki svo langt frá Möðruvöllum. Þar bjuggu þau í timburhúsi, svokallaðri Skjaldarvíkurstofu. Fyrsta veturinn þeirra þar hugsaði Kristjana um að leggja til við Pétur að þau slitu samvistum. Hún var ólétt þegar þarna var komið sögu og hafði óskað eftir aðstoð móður sinnar og systkina ef til þess kæmi að hún færi burt með börnin. Tryggvi bauð systur sinni að setjast að á Hallgilsstöðum en allt kom fyrir ekki. Vorið 1872 útskýrði Kristjana fyrir Tryggva í bréfi að hún hefði fallið frá áformum sínum um að skilja við Pétur eftir að hafa „ráðfært“ sig við hann. Viku eftir að Kristjana skrifaði bróður sínum, fæddist þeim Kristjönu og Pétri sonurinn Gunnar. Upp frá þessu féll allt í ljúfa löð í Skjaldarvík, verulega dró úr áfengisneyslu amtmannsins fyrrverandi og meiri ró færðist yfir heimilið.

Kvennaskólinn á Laugalandi eftir að Eggert Gunnarsson byggði við Skjaldarvíkustofu árið 1877. Ljósmynd af málverki frá miðri 20. öld eftir Baldur Eiríksson frá Dvergsstöðum.

Við andlát Péturs flutti Kristjana að Syðra-Laugalandi í Eyjafirði til bróður síns Eggerts sem hafði þá nýlega eignast jörðina. Eggert kom því til leiðar að Skjaldarvíkurstofa var rifin, timbrið flutt að Syðra-Laugalandi og nýtt þar til byggingar kvennaskóla, þess fyrsta á Norðurlandi. Kennsla hófst í skólanum haustið 1877. Kristjana bjó á Laugalandi til ársins 1881 þegar hún flutti til Reykjavíkur. Hún bjó um skeið í Stykkishólmi með dóttur sinni Elínu og síðar hjá Hannesi syni sínum. Kristjana lést í Reykjavík 24. febrúar 1927.

Til vinstri: Legsteinn Kristjönu í Hólavallakirkjugarði við Suðurgötu. Til hægri: Kristjana með syni sínum Hannesi. Myndin er tekin á Ísafirði árið 1899.

Heilsuleysi Kristjönu í kjölfar fæðingar Elínar þriðjudaginn 2. febrúar 1869 gæti skýrt dvöl Þórðar læknis í Friðriksgáfu miðvikudaginn 17. febrúar. Sem fyrr er ekkert fast í hendi hvað það varðar. Eftir stendur spurningin um hver var að verki, hver skráði stað og stund í bókina góðu. Vonin um svör dvínar. Þó er ekki öll nótt úti enn því saga Grenndargralsins um bókina í Friðriksgáfu inniheldur laumufarþega. Sá hefur sterk tengsl við sögusvið og allar aðalpersónur sögunnar og snertifletirnir við hið sögulega augnablik þegar Chemische Briefe var árituð í stássstofunni á Möðruvöllum eru óneitanlega fyrir hendi.