main image

Friðriksgáfa 17. febrúar 1869 – Amtmaðurinn

Amtmannssetrið Friðriksgáfa á Möðruvöllum í Hörgárdal hefur heillað söguáhugafólk og veitt listamönnum innblástur í 150 ár. Frederiksgave var gjöf Friðriks VI. Danakonungs, reist árið 1829 en brann til kaldra kola vorið 1874. Telja verður harla ólíklegt að hlutir sem eitt sinn tilheyrðu Friðriksgáfu komi í leitirnar úr þessu, í ljósi umfangs eldsvoðans og tímans sem liðinn er. En lengi er von á einum. Við athuganir í geymslu Menntaskólans á Akureyri fannst gömul bók með áritun sem rekja má til hins sögufræga amtmannsbústaðar. Grenndargralið segir sögurnar á bak við bókina og reynir að komast að því hver er ábyrgur fyrir hinni dularfullu áritun. Við sögu koma héraðslæknir, fátækur skrifari og vel stæð amtmannshjón, umboðsmaður klausturjarða og dauðvona eiginkona hans.

Pétur Havsteen (1812-1875) gegndi embætti amtmanns í Norður- og Austuramti frá maí 1850 til september 1870 og bjó á þeim tíma í Friðriksgáfu. Þriðja eiginkona Péturs hét Katrín Kristjana Gunnarsdóttir (1836-1927). Átján ára gömul fór Kristjana að Grund í Eyjafirði til móðurbróður síns þar sem hún hitti þennan virðulega embættismann sem var tæpum aldarfjórðungi eldri en hún og með tvö hjónabönd á „ferilskránni“. Þau gengu í hjónaband árið 1857 og sama ár flutti hún inn í Friðriksgáfu. Pétur og Kristjana eignuðust níu börn en þeirra kunnast er Hannes, síðar ráðherra, fæddur á Möðruvöllum 1861. Tvö barnanna dóu í æsku.

Málverk í eigu Þjóðminjasafnsins af ungum Pétri Havsteen. Til hliðar við amtmanninn eru tvö barna hans á fullorðinsaldri, Þórunn Havsteen sem hann átti með Guðrúnu og Hannes Hafstein sem hann átti með Kristjönu.

Fyrsta eiginkona Péturs hét Guðrún Hannesdóttir Stephensen (1827-1851). Saman áttu þau tvö börn, Hannes og Þórunni. Hannes dó ungur. Pétur syrgði konu sína og son ákaft eftir að þau féllu frá með stuttu millibili og þjáðist í kjölfarið af þunglyndi. Hann naut aðstoðar lækna, reyndi óhefðbundnar lækningar og ferðaðist innanlands sem utan sér til heilsubótar. Þrátt fyrir góða viðleitni bar hann aldrei sitt barr eftir missinn. Bróðir Kristjönu reyndist mági sínum vel á erfiðum tímum. Þeir ferðuðust saman til Kaupmannahafnar sumarið 1862. Vinátta og gagnkvæm virðing þeirra í millum hélst allt til æviloka amtmannsins. Þrátt fyrir erfiðleika í einkalífi var Pétur farsæll í starfi fyrstu árin og vinsæll amtmaður meðal íbúa amtsins, ekki síst vegna skeleggrar forystu hans í „fjárkláðamálinu“ á sjötta áratugnum. Risu þá upp miklar deilur um hvort beita ætti lækningum til að útrýma kláða sem þá herjaði á íslenskt sauðfé eða skera féð niður. Pétur var í forsvari fyrir síðarnefnda hópinn og þótti sýna vasklega framgöngu gegn „kláðakóngunum“ Jóni Sigurðssyni og hinum danska yfirdýralækni Tscherning sem vildu reyna lækningaleiðina.

Pétur Havsteen og Jón Sigurðsson voru herbergisfélagar á námsárum þeirra í Kaupmannahöfn en andstæðingar í pólitík og þá ekki síst þegar kom að fjárkláðamálinu. Myndin af Jóni er tekin á ljósmyndastofu í Kaupmannahöfn. Veitið gólfteppinu athygli.

Í kjölfar fjárkláðamálsins fór að bera á ágreiningi milli Péturs og annarra embættismanna í Norður- og Austuramti. Misklíð sem átti eftir að vinda upp á sig eftir því sem leið á sjöunda áratuginn. Pétur leitaði í auknum mæli á náðir Bakkusar, geðheilsu hans hrakaði og álit almennings á honum og störfum hans fór þverrandi, sérstaklega í Þingeyjarsýslu. Óánægja í garð amtmannsins jókst og sífellt fleiri höfðu horn í síðu hans. Hjónaband hans og Kristjönu hékk á bláþræði árið 1868. Fjandskapur milli Péturs og þeirra sem hann átti í deilum við náði hámarki þegar hann hóf að leysa hreppstjóra í Þingeyjarsýslu undan störfum í unnvörpum fyrir litlar sem engar sakir.

Pétur, Kristjana og börnin. Mynd: https://www.stefanwolffbrandt.dk/gravsteder-island/

Í upphafi árs 1869 sömdu Þingeyingar ákæruskjal á hendur Pétri. Aðal maðurinn á bak við þá ráðstöfun var Tryggvi Gunnarsson bóndi á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal, bróðir Kristjönu. Ætla má að andrúmsloftið hafi verið nokkuð lævi blandið í Friðriksgáfu í febrúar á meðan á öllu þessu gekk. Pétur átti hauka í horni því margir úr hópi Eyfirðinga voru ósáttir við illa meðferð Þingeyinga á veikum amtmanninum. Mótmæli þeirra komu þó ekki í veg fyrir að Pétur var kærður fyrir konungi í júní 1869 sem endaði með því að hann var sviptur embætti í september 1870. Eftir embættismissinn fluttu Pétur og Kristjana frá Möðruvöllum í Skjaldarvík við Eyjafjörð. Þar lést Pétur 63 ára gamall.

Möðruvallakirkja sem nú stendur var reist árið 1867. Pétur Havsteen var í forsvari fyrir því að kirkjan var reist eftir að fyrri kirkja á staðnum brann árið 1865.

Farið var að hrikta í stoðum samstarfs Péturs og Sveins Þórarinssonar amtskrifara, nánasta kollega hans til margra ára, um það leyti sem deila Péturs og Þingeyinga stóð sem hæst. Hvort veikindi hans hafi átt þátt í að brestir urðu í vinskap þeirra tveggja skal ósagt látið. Hitt er víst að Pétur leysti Svein frá störfum haustið 1867 sem umsjónar- og fjárhaldsmaður Möðruvallakirkju og þótti Sveini illa að sér vegið. Þröngt var í búi í Aðalstræti 54 vegna brottvikningarinnar, svo mjög að erfitt var að fá salt í grautinn. Þunglyndi fylgdi í kjölfarið. Sveinn skrifar í dagbók 9. september að hann og amtmaður hafi hist á Akureyri og „heilsuðumst við ei né töluðum saman.“ Áfram má greina kergju í garð Péturs í maí og júní 1869. Þann 10. maí færir Sveinn til bókar að samkvæmt fyrirmælum amtmanns „hefir einhver svonefnd heilbrygðisnefnd fest upp hér í bænum „Placat“ um sóttnæmi hjá mér, eitrað hús og bann móti samgöngum. […] 13. júní. Kuldinn er óþolandi og hungur að harðna, verst brauðleysi. Amtmaður og aðrir Möðruvellingar komu hér og fóru heim aptur, er mælt að amtmaður hafi fengið kornmat hjá Möller handa sér, og vitanlegt er einnig að þeir Möller og Steincke hafa bæði fleyri kjöttunnur, brauð og mjöl, sem þeir liggja á og geyma, þó hungurdauði vofi yfir allt í kring um þá.“

Leiði Péturs Havsteen og Guðrúnar Hannesdóttur Stephensen, hlið við hlið í kirkjugarðinum á Möðruvöllum í Hörgárdal. Legsteinn amtmannsins er með hvítum marmarafleti.

Hvað samskipti Péturs og Þórðar læknis varðar er ekki annað að sjá en að þau hafi verið góð. Áður hefur Gralið greint frá samvinnu þeirra í baráttunni gegn mislingum og læknisvitjunum Þórðar í Hörgárdal. Þá er ekki ólíklegt að Pétur hafi leitað til Þórðar í veikindum sínum. Í það minnsta talar Þórður um að ástand amtmannsins sé „með frískasta móti í vetur“ í bréfi sem hann skrifaði 28. febrúar 1869 og talar ennfremur um glímu hans við sinn „vanalega skammdegissjúkdóm“. Þessi orð héraðslæknisins eru athyglisverð í ljósi þeirrar byrðar sem á amtmanninum hvíldi um þetta leyti. Þórður skrifar ennfremur: „Hann [Pétur] er nú að heyra utan að sér að það standi til að hann verði settur af en svo ætla þeir hérna að senda bænarskrá um kommanderkross handa honum, líklega núna með pósti. Einn hreppstjórinn kom með hana til mín í gær og vildi fá mig til að skrifa undir en ég er ekki heima í þeim efnum og vildi því ekki hafa neitt með það að sýsla.“ Í síðasta hluta velti Grenndargralið vöngum yfir því hvort Þórður gæti hafa verið veðurtepptur í Friðriksgáfu 17. febrúar 1869. Í fyrrnefndu bréfi segir Þórður: „Ég hefi oft komið þangað [í Friðriksgáfu] og verið þar nætursakir og hefir hann [amtmaður] alltaf tekið mér einstaklega vel og verið hinn viðfellnasti.“ Dagbókarfærslur Sveins varpa einnig ljósi á samskipti Péturs og Þórðar eftir að Chemische Briefe var árituð í Friðriksgáfu. Sveinn skrifar svo í maí 1869: „11. maí. Ég gekk út til læknisins með skilaboð frá P. Magnússyni sem seint í gærkvöldi kom frá Möðruvöllum með ýmsar fréttir. 13. maí. Jón litli er orðin vel frískur, læknirinn kom samt að vitja um hann og fór svo út að Möðruvöllum.“

Undirskrift Péturs í „gestabók“ í frægu samsæti í Kaupmannahöfn árið 1839 til heiðurs franska vísindamanninum Paul Gaimard. Gaimard kom í Friðriksgáfu sumarið 1836. Lesendur geta nú borið sama skrift Péturs við áritunina í Chemische Briefe 30 árum síðar og lagt mat á líkindin.

Auk Þórðar kemur Pétur Havsteen amtmaður til greina sem mögulegur ritari Chemische Briefe. Bókin er í það minnsta árituð á setrinu hans og víst að Pétur og Þórður áttu mikið saman að sælda í ljósi embættanna sem þeir gegndu. Nú liggur einnig fyrir að heimsókn Þórðar á Möðruvelli þann 17. febrúar 1869 er vel hugsanleg þrátt fyrir snjóþyngsli og ófærð. Ekki var óvanalegt að læknirinn dveldi næturlangt í Friðriksgáfu. Við höfum orð hans sjálfs fyrir því. Hver ástæða heimsóknarinnar gæti hafa verið er erfiðara að segja til um. Kannski var Pétur ekki eini íbúinn í Gáfu sem þarfnaðist læknisaðstoðar í febrúar 1869.

Friðriksgáfa 17. febrúar 1869 – Amtskrifarinn

Amtmannssetrið Friðriksgáfa á Möðruvöllum í Hörgárdal hefur heillað söguáhugafólk og veitt listamönnum innblástur í 150 ár. Frederiksgave var gjöf Friðriks VI. Danakonungs, reist árið 1829 en brann til kaldra kola vorið 1874. Telja verður harla ólíklegt að hlutir sem eitt sinn tilheyrðu Friðriksgáfu komi í leitirnar úr þessu, í ljósi umfangs eldsvoðans og tímans sem liðinn er. En lengi er von á einum. Við athuganir í geymslu Menntaskólans á Akureyri fannst gömul bók með áritun sem rekja má til hins sögufræga amtmannsbústaðar. Grenndargralið segir sögurnar á bak við bókina og reynir að komast að því hver er ábyrgur fyrir hinni dularfullu áritun. Við sögu koma héraðslæknir, fátækur skrifari og vel stæð amtmannshjón, umboðsmaður klausturjarða og dauðvona eiginkona hans.

Víkur nú sögunni að þætti Sveins Þórarinssonar amtskrifara á Möðruvöllum. Sveinn var frá Kílakoti í Kelduhverfi, fæddur árið 1821. Eiginkona hans var Sigríður Jónsdóttir (1826-1910). Sveinn var skrifari amtmanns í tæp 20 ár, í embættistíð Péturs Havsteen. Lungann úr þeim tíma bjuggu þau hjónin ásamt börnum á Möðruvöllum. Þau fluttu til Akureyrar 1865. Sveinn var hægri hönd amtmannsins og reyndist honum vel í hvívetna. Hann hélt dagbækur árum saman og allt þar til hann lést á Akureyri í júlí 1869. Í dagbókunum má finna frásagnir af samferðafólki á Akureyri og á bæjunum í kring og kemur Þórður Tómasson héraðslæknir nokkuð við sögu. Grenndargralið rýnir í dagbókarfærslur Sveins á árunum 1868 og 1869.

Frá vinstri: Sveinn Þórarinsson (1821-1869), Jón Sveinsson, Nonni (1857-1944), Sigríður Jónsdóttir (1826-1910)

Þegar Þórður og Camilla komu til Akureyrar með briggskipinu Herthu haustið 1868, hafði Sveinn flust búferlum ásamt fjölskyldu sinni úr Hörgárdal í Aðalstræti 54, í svokallað Pálshús (síðar kallað Nonnahús). Sveinn varð vitni að því þegar Hertha nálgaðist Akureyri með lækninn og frú hans innanborðs föstudaginn 25. september. Hann skrifar svo í dagbók sama dag: „Jón litli minn kom frá Espihóli og fylgdi stúlku út í Dunhaga. Hertha sem kom frá Höfn, hafnaði sig hér um kvöldið.“ Tveimur dögum eftir að Hertha kom til Akureyrar voru Þórður og Camilla mætt til guðsþjónustu í nýlegri kirkju Akureyringa. Þau voru ekki ein á ferð. „Læknir Þórður Tómasson sem kom með Herthu var í kirkju með konu sína og barn.“ Þarna vísar Sveinn til Ölphu Maríu dóttur þeirra sem nefnd var til sögunnar í síðasta hluta.

Fyrsta kirkja Akureyringa á Akureyri, vígð 1863

Í ársbyrjun 1869 greinir Sveinn frá heimsókn Þórðar til fjölskyldunnar í Aðalstræti 54. Björg, elsta dóttir Sveins og Sigríðar, hafði fengið heiftarlega tannpínu. Þórður skoðaði Björgu og var mat hans að hann „gat ei dregið jaxl úr henni fyrir bólgu.“ Eftir þetta og fram á sumar leit Þórður reglulega við í Aðalstræti 54. Ekki síst voru vitjanir hans vegna heilsufars Jóns (Nonna), sonar Sveins og Sigríðar. Nonni hafði borið sig illa og kvartað undan heilsuleysi um vorið. „10. maí 1869. Læknirinn kom að vitja um Nonna, sem nú er þrautalaus og fór á fætur um stund.“ Ljóst er af dagbókarskrifum Sveins að samskipti hans og Þórðar hafa verið töluverð.

Aðalstræti 54, Nonnahús byggt 1849

Sveinn segir einnig frá læknisvitjunum Þórðar beggja vegna Möðruvalla, í Hörgárdal í suðri og í Arnarneshreppi að norðanverðu. Stuttu eftir að Þórður hóf störf, í desember 1868, var hann fenginn til að „obducere“ lík af tveimur konum sem höfðu dáið snögglega í Möðruvallasókn „af undarlegum veikleika, hastarlegri bólgu um lífið.“ Mánuði fyrir áritun bókarinnar í Friðriksgáfu, eða þann 17. janúar 1869 var Þórður sóttur fram í Eyjafjarðarsveit þar sem hann var staddur hjá hjónunum á Espihóli. Þar var hann að sinna fárveikri húsfreyjunni. Þetta var annasamur dagur hjá héraðslækninum því „þegar hann var að fara af stað kom maður að sækja hann til konu í barnsnauð á Myrká og fór hann þangað.“

Kirkjan að Myrká í Hörgárdal sem stóð þegar Þórður renndi í hlað 17. janúar 1869. Kirkjan var rifin árið 1911

Tengsl Þórðar og Sveins blasa við, aukinheldur sem samskipti þeirra beggja við heimilisfólk á Möðruvöllum eru augljós. Að svo komnu máli er rétt að skoða dagbókarfærslu Sveins frá 17. febrúar, daginn sem Chemische Briefe var árituð, og sjá hvort hún varpi ljósi á hvað fór fram í Friðriksgáfu þennan tiltekna dag: „Norðan dimmviðris hríð óklúfandi ófærð. Eg hafði 4 pilta á skóla, hætti nú við Morphinpillur og var því lasin í dag (Mophin-timpurmenn) Nú eru litlar ferðir hér milli húsa vegna ófærðar.“ Og Sveinn heldur áfram að lýsa veðrinu næsta dag, 18. febrúar: „Norðan gola, hríðarlítið en dimmt og ljótt lopt[…]Ofarandi um jörð nema á skíðum.“

Dagbókarfærsla Sveins Þórarinssonar miðvikudaginn 17. febrúar 1869

Þrátt fyrir ýmis tengsl og vísbendingar er Grenndargralið litlu nær um hver áritaði bókina og af hvaða tilefni. Önnur bók sem Grenndargralið fann í kjallara Amtsbókasafnsins á Akureyri með áritun Þórðar Tómassonar (sjá síðasta hluta) bendir til þess að nafn hans í Chemische Briefe sé ritað af honum sjálfum. Eftir stendur fyrri hluti áritunarinnar í Chemische Briefe. Hann veldur meiri heilabrotum. Rökrétt er að ætla að sami einstaklingur skrifi allan textann. Hins vegar má greina ólík stíleinkenni rithandar þegar bornir eru saman fyrri og seinni hluti áritunarinnar. Meira bil er á milli stafa og orða í fyrri hlutanum „Friðriksgáfu · 17/ii 69.“ heldur en í seinni hlutanum „Þórður Tómasson“ þar sem stafabil er þétt og stutt bil milli orða. Má vera að Þórður hafi skráð nafn sitt í bókina seinna, eftir að hún var merkt stað og stund á Möðruvöllum? Spjótin eru farin að beinast að amtmannshjónunum.

Legsteinn Sveins amtskrifara í kirkjugarðinum á Naustahöfða á Akureyri

Líkja má leit Gralsins að ritaranum í Friðriksgáfu fyrir tæpum 160 árum við leit að nál í heystakki. Við vitum núna að þegar sá eða sú hélt penna á lofti í notalegri og hlýlegri Friðriksgáfu miðvikudaginn 17. febrúar 1869, var dimmt og kalt úti í nágrenni Möðruvalla, stórhríð og ófært milli bæja nema fyrir fólk á skíðum. Líklega ekki kjöraðstæður fyrir gestagang og því harla ólíklegt að aðrir en ábúendur á Möðruvöllum hafi verið staddir í Gáfu þennan dag. Við höfum þó dæmi um ferðalög Þórðar við afar slæm veðurskilyrði til að vitja sjúklinga í neyð sbr. ferð hans í október 1873 sem Gralið sagði frá í síðasta hluta. Var héraðslæknirinn kannski veðurtepptur í Friðriksgáfu? Ef svo, hvaða erindi átti hann þangað sem mátti ekki bíða þar til veðri slotaði?

Friðriksgáfa 17. febrúar 1869 – Héraðslæknirinn

Amtmannssetrið Friðriksgáfa á Möðruvöllum í Hörgárdal hefur heillað söguáhugafólk og veitt listamönnum innblástur í 150 ár. Frederiksgave var gjöf Friðriks VI. Danakonungs, reist árið 1829 en brann til kaldra kola vorið 1874. Telja verður harla ólíklegt að hlutir sem eitt sinn tilheyrðu Friðriksgáfu komi í leitirnar úr þessu, í ljósi umfangs eldsvoðans og tímans sem liðinn er. En lengi er von á einum. Við athuganir í geymslu Menntaskólans á Akureyri fannst gömul bók með áritun sem rekja má til hins sögufræga amtmannsbústaðar. Grenndargralið segir sögurnar á bak við bókina og reynir að komast að því hver er ábyrgur fyrir hinni dularfullu áritun. Við sögu koma héraðslæknir, fátækur skrifari og vel stæð amtmannshjón, umboðsmaður klausturjarða og dauðvona eiginkona hans.

Á sama tíma og Friðriksgáfa reis af grunni var ungur maður, Tómas Sæmundsson frá Austur-Landeyjum staddur á Akureyri.  Tómas kom nokkrum árum síðar að stofnun Fjölnis ásamt Jónasi Hallgrímssyni og félögum. Á Akureyri kynntist hann Sigríði Þórðardóttur. Þau felldu hugi saman og gengu í heilagt hjónaband. Ávöxtur hjónabands þeirra voru Þórhildur (1835-1923), eiginmaður hennar var Helgi Hálfdanarson lektor og þingmaður og Þórður fæddur 13. mars 1837. Eftir útskrift frá Lærða skólanum vorið 1857 fór Þórður í læknanám til Danmerkur. Þar kynntist hann Camillu Christiane Enig (1847-1926), dóttur hljóðfærasmiðs í Kaupmannahöfn. Þau giftu sig árið 1866.

Til vinstri: “En Pige frá Öfjord”, þekkt málverk frá miðri 19. öld sem sýnir stúlku á peysufötum með Akureyri og Eyjafjörð í bakgrunni. Stúlkan á málverkinu er talin vera Jörgine Petrea Havsteen. Til hægri: Málverk Carl Emil Baagøe frá miðri 19. öld af Pollinum á Akureyri og briggskipinu Herthu.

Briggskipið Hertha lagði úr höfn í Kaupmannahöfn í ágústlok 1868 og tók stefnu á Akureyri. Um borð voru Camilla, Þórður og Alpha Maria, ung dóttir þeirra hjóna, fædd árið 1867. Ástæða flutninganna var ráðning Þórðar í stöðu héraðslæknis í Norður- og Austuramti frá og með haustinu. Líklega hefur koffort þeirra hjóna aðeins innihaldið helstu nauðsynjar og fáeinar ljósmyndir. Áður en kom að löngu ferðalagi yfir hafið brá fjölskyldan sér á ljósmyndastofu við Østergade 24 í Kaupmannahöfn. Þar voru teknar myndir af Þórði og Camillu með Ölphu Mariu í kjöltunni. Myndirnar voru teknar á ljósmyndastofu Emil Lange, þekkts ljósmyndara á þessum tíma. Þegar þarna var komið sögu hafði hann myndað suma af helstu góðborgurum Kaupmannahafnar, m.a. Alexöndru prinsessu sem síðar varð drottning yfir Bretlandi. Myndirnar af Þórði og fjölskyldu hafa varðveist og eru nú geymdar á Þjóðminjasafni Íslands. Samferða litlu fjölskyldunni um borð í Herthu var Jörgine Petrea Havsteen. Hún var á heimleið eftir ársdvöl erlendis. Petrea var af góðum ættum, bróðurdóttir Péturs Havsteen amtmanns á Möðruvöllum.

Þórður Tómasson (tv), Camilla Christiane Enig og Alpha Maria (th). Myndirnar eru teknar á ljósmyndastofu Emil Lange. Þær eru varðveittar á Þjóðminjasafninu og fengnar af sarpur.is

Þrjár myndir frá ljósmyndastofu E. Lange. Fyrir miðju er Alexandra prinsessa, síðar drottning. Sitt hvoru megin eru ónafngreindir borgarar í Kaupmannahöfn. Takið eftir gólfteppinu sem er hið sama og sjá má á myndinni af Camillu og Ölphu Mariu hér að ofan.

Dönsk hjón sem flutt höfðu til Akureyrar þá um vorið reyndust Þórði, Camillu og Ölphu Mariu vel við komuna í bæinn. Henrik Schiöth (1841-1923), sem barist hafði í Slésvíkur-Holsteinstríðinu nokkrum árum áður, tók á móti læknisfjölskyldunni þegar hún steig frá borði þann 25. september. Anna Schiöth (1846-1921) var komin af gull- og úrsmiðum í Danmörku og átti sjálf eftir að fást við skapandi atvinnugrein þ.e. ljósmyndun. Schiöth-hjónin veittu hinum nýju bæjarbúum húsaskjól á meðan reynt var að finna húsnæði sem hentaði þeim. Endurfundir urðu þegar Camilla og Anna hittust. Þær höfðu verið æskuvinkonur í kóngsins Köben. Kynni þeirra Henrik og Þórðar á bryggjunni urðu upphafið að traustri vináttu sem þó fékk ekki að dafna nema í takmarkaðan tíma.

Peter Frederik Hendrik Schiöth (1841-1923) & Anna Cathrine Schiöth, fædd Larsen (1846-1921).

Fljótlega eftir komuna til Akureyrar fóru verkefnin að hlaðast upp hjá hinum nýja héraðslækni. Á meðan Þórður og Camilla voru að koma sér fyrir á heimili Schiöth-hjónanna höfðu sjómenn af frönskum fiskibáti blandað geði við fjölskyldu á bæ einum á Langanesi og smitað meðlimi hennar af mislingum. Frá Langanesi breiddust mislingarnir út um landið. Eitt fyrsta verk Þórðar sem héraðslæknis var að leita leiða við að hefta útbreiðslu veirusjúkdómsins. Hann og amtmaður tóku höndum saman. Á sínu fyrsta ári í starfi skrifaði Þórður ritið „Nokkur orð um mislinga“ og amtmaður gaf út „Erindisbréf fyrir heilbrigðisnefndirnar í Norður- og Austuramtinu áhrærandi mislingasýkina“. Boltinn var farinn að rúlla og Þórður hafði í nægu að snúast. Hann gegndi embætti héraðslæknis í fimm ár, til dauðadags 1873. Lungann úr þeim tíma bjuggu hann og Camilla í Aðalstræti 8, í húsi sem brann árið 1901. Þar fæddust þeim synirnir Tómas og Þórður Tómas. Tómas fæddist árið 1870 en lést sama ár aðeins mánaðargamall. Grenndargralinu er ekki kunnugt um hvar hann hvílir. Þórður Tómas kom í heiminn 7. desember 1871. Hann átti síðar eftir að verða nafnkunnur prestur í Horsens í Danmörku.

“Nokkur orð um mislinga” eftir Þórð Tómasson héraðslækni. Á innfelldu myndinni er Þórður Tómasson yngri, prestur í Danmörku.

Þórður læknir var vel liðinn af samferðafólki. Sögur af honum og störfum hans á fimm ára tímabili í Norður- og Austuramti bera þess vitni. Hann kenndi ungum stúlkum ljósmóðurfræði á Akureyri, aflimaði bónda í Kelduhverfi og tók á móti tvíburum á Stóra-Eyrarlandi svo eitthvað sé nefnt. Sveinn Þórarinsson skrifari hjá Pétri amtmanni segir frá heimsókn Þórðar í dagbók sinni í janúar 1869. Kom hann til að líta á dóttur Sveins sem þjáðist af tannpínu. Skjólstæðingar Þórðar lýsa honum sem einstöku ljúfmenni og minnast hans með þakklæti og virðingu. Svo mikil var þjónustulund hans í garð sjúklinga að hann þurfti að lokum að gjalda fyrir hana með lífi sínu.

Eina kalda vetrarnótt í október 1873 var Þórður beðinn um að vitja sængurkonu út í sveit. Um langan veg var að fara auk þess sem mikið frost gerði lækninum erfitt fyrir á ferðalaginu. Blautur og kaldur komst hann á leiðarenda og tók á móti barni. Um svipað leyti og Þórður barðist í gegnum stórhríðina tók Gamli spítali við Aðalstræti 14 á Akureyri til starfa. Ekki leið nema tæpur mánuður þar til Þórður var allur. Hann lést 2. nóvember, aðeins nokkrum dögum áður en Friðrik C.M. Gudmann afhenti Akureyrarbæ Gudmanns Minde að gjöf með formlegum hætti. Þórður var þannig fyrsti læknirinn til að starfa við fyrsta spítala Akureyrar.

Bók frá 1832 með áritun Þórðar Tómassonar sem fannst nýlega í kjallara Amtsbókasafnsins.

Þórður Tómasson var 36 ára þegar hann lést. Dánarorsök var lungnabólga sem rakin var til ofkælingar. Hann hvílir í kirkjugarðinum við Naustahöfða á Akureyri. Þórður var ekki ríkur maður þegar hann dó. Sagan segir að þegar hann kvaddi hafi einungis verið til einn tveggja skildinga peningur á heimilinu sem Camilla lét gylla og segir sagan jafnframt að hún hafi borið peninginn í úrkeðju sinni til dauðadags 1926. Af einhverjuum ástæðum hefur bók í hans eigu orðið eftir þegar Camilla og börnin fluttu til Danmerkur, bók sú er hér er til umfjöllunar og er nú í eigu Menntaskólans á Akureyri. Eftir að rannsókn á skruddunni fór af stað fann Grenndargralið bók í kjallara Amtsbókasafnsins, merkt Þórði Tómassyni. Ekki verður annað séð en að hér sé um sömu skrift að ræða og því líklega önnur bók úr fórum héraðslæknisins komin í leitirnar. Stuttu eftir andlát Þórðar, n.t.t. vorið 1874, sigldi Camilla til Danmerkur og settist þar að ásamt Þórði litla sem þá var á fjórða ári.

Legsteinn Þórðar Tómassonar í kirkjugarðinum á Naustahöfða.

Vinirnir frá Akureyri, Henrik og Anna heimsóttu Camillu og börnin til Kaupmannahafnar nokkrum árum eftir að þau fluttu, mögulega veturinn 1877-78 þegar Anna var við nám í ljósmyndun. Þórður yngri kom til Akureyrar sumarið 1922 og notaði þá tækifærið til að vitja leiðis föður síns og heimsækja Henrik sem þá var rúmlega áttræður að aldri. Anna var þá nýlega látin og Henrik átti aðeins nokkra mánuði eftir ólifaða.

Er áritunin í Chemische Briefe, Þórðar læknis eða var einhver annar eða önnur með pennann á lofti í Friðriksgáfu? Hvaða tengsl hafði Þórður við Friðriksgáfu sem skýrir áritun með hans nafni og amtmannsbústaðarins, færð til bókar rétt um það leyti sem Friðriksgáfa fagnaði hálfrar aldar afmæli, miðvikudaginn 17. febrúar 1869? Nú væri gott að geta stigið upp í tímavél, stillt á stað og stund og verið fluga á vegg. Skyldi Sveinn Þórarinsson amtskrifari hafa skráð eitthvað sem varpað gæti ljós á málið í síðustu dagbók sína áður en hann lést sumarið 1869?

Friðriksgáfa 17. febrúar 1869 – Húsið & bókin

Amtmannssetrið Friðriksgáfa á Möðruvöllum í Hörgárdal hefur heillað söguáhugafólk og veitt listamönnum innblástur í 150 ár. Frederiksgave var gjöf Friðriks VI. Danakonungs, reist árið 1829 en brann til kaldra kola vorið 1874. Telja verður harla ólíklegt að hlutir sem eitt sinn tilheyrðu Friðriksgáfu komi í leitirnar úr þessu, í ljósi umfangs eldsvoðans og tímans sem liðinn er. En lengi er von á einum. Við athuganir í geymslu Menntaskólans á Akureyri fannst gömul bók með áritun sem rekja má til hins sögufræga amtmannsbústaðar. Grenndargralið segir sögurnar á bak við bókina og reynir að komast að því hver er ábyrgur fyrir hinni dularfullu áritun. Við sögu koma héraðslæknir, fátækur skrifari og vel stæð amtmannshjón, umboðsmaður klausturjarða og dauðvona eiginkona hans.

Flestum er kunnugt um tíða eldsvoða í Hörgárdal fyrr á öldum. Klaustur, kirkjur og skóli hafa orðið eldi að bráð á Möðruvöllum sem og bústaðir amtmanns. Friðriksgáfa var reist á rústum amtmannsbústaðar Gríms Jónssonar sem brann árið 1826. Friðrik konungur brá þá á það ráð að gefa fé til byggingar steinhúss sem var fullbyggt vorið 1829. Hann ákvað, að tillögu amtmanns, að húsið skyldi kallast Friðriksgáfa.

Friðriksgáfa í Hörgárdal. Á innfelldu myndinni má sjá hús á Selfossi sem byggt var nýlega að fyrirmynd hinnar einu sönnu Friðriksgáfu.

Fjölnismennirnir Tómas Sæmundsson og Jónas Hallgrímsson urðu vitni að því þegar Friðriksgáfa reis af grunni. „Dægilega fallegt“ sagði Tómas þegar hann leit dýrðina augum. Jónas orti ljóð til heiðurs hinu reisulega steinhúsi. Í öðru erindi ljóðsins Möðruvalla-steinhús (í byggingu) minnist hann þess þegar amtmannsstofan brann 1826. Í því þriðja bindur hann vonir við að nýja byggingin, Friðriksgáfa standi styrkari fótum.

Stattu, steinhús,
stólpa heilli!
Þökk sé þeim, er vel að vinnur!
Stattu vel, steinhús,
og standi vel
gæfa þíns góða herra!

(ort 1828)

Jónas Hallgrímsson (tv) og Tómas Sæmundsson. Á milli þeirra er teikning af Friðriksgáfu.

Líftími og örlög Friðriksgáfu hafa í tímans rás vakið upp forvitni söguþyrstra grúskara. Friðriksgáfa er sveipuð ævintýraljóma og óræðum blæ dulúðar þannig að öll frekari vitneskja um þetta „dularfulla“ hús er vel þegin. Vissulega eru fjölmargar frásagnir til af Friðriksgáfu. Möðruvalla-steinhúsið var jú heimili embættismanns dönsku krúnunnar í 55 ár á 19. öld og víst er að margar áhugaverðar sögupersónur sóttu amtmannshjónin heim. Við skulum rifja upp nokkrar heimsóknir.

Margar þekktir einstaklingar í sögunni heimsóttu Friðriksgáfu. Málverkið er málað af Auguste Mayer sem kom á Möðruvelli árið 1836. Friðriksgáfa er fyrir miðri mynd.

Meðal gesta árið 1834 var Friðrik prins, síðar konungur Danmerkur. Tveimur árum eftir heimsókn hans hátignar reið franski vísindamaðurinn Paul Gaimard í hlað og ekki löngu seinna sat Bólu-Hjálmar að sumbli með amtmanninum á Möðruvöllum. Danski listmálarinn Carl Baagøe ferðaðist um Akureyri og nágrenni árið 1855 og rissaði upp mynd við það tækifæri af kirkjunni á Möðruvöllum. Þá má víst telja að bæði Jón Sveinsson (Nonni) og Hannes Hafstein hafi spígsporað um á fjölum Friðriksgáfu á amtmannsárum Péturs Havsteen 1850-1870. Þeir fæddust báðir á Möðruvöllum, Nonni 1857 og Hannes 1861. Sveinn faðir Nonna var skrifari Péturs amtmanns, föður Hannesar. Síðast en ekki síst kíkti sjálfur William Morris í heimsókn sumarið 1873, tæpu ári fyrir brunann og skrifar í dagbók sína; „…mountains behind Fiðriksgáfa. Governor and his ways.“

Bókin sem fannst í Menntaskólanum á Akureyri.

Áritunin í Chemische Briefe.

Bókin sem fannst í geymslu Menntaskólans á Akureyri kom fyrst út í Þýskalandi árið 1844. Höfundurinn var þekktasti efnafræðingur Þýskalands á 19. öld, Justus von Liebig (1803–1873). Liebig hlotnaðist margs konar heiður á ævi sinni t.d. virt verðlaun árið 1869 sem kennd eru við Albert prins, eiginmann Viktoríu Bretadrottningar (The Albert Medal). Bókin heitir Chemische Briefe. Henni var á sínum tíma ætlað að útskýra efnafræði á „mannamáli“ og glæða áhuga almennings á fræðigreininni. Bókin er 350 blaðsíður, innbundin með gyllingu á kili, 18×12 cm, á stærð við ljósmynd og árituð með dökku bleki. Chemische Briefe hefur allnokkrum sinnum komið út á prenti. Umrætt eintak er frá 1844 og tilheyrir þannig fyrstu prentun bókarinnar. Efst á fyrstu síðu bókarinnar er ritað: „.Friðriksgáfu · 17/ii 69. Þórður Tómasson“.

Justus von Liebig (tv) og Dmitri Mendeleev. Til hægri er mynd af minnisblaði Mendeleev sem inniheldur tímamótauppgötvun hans viðvíkjandi Lotukerfið. Ef rýnt er í myndina má sjá dagsetninguna 17. febrúar 1869.

Þennan sama dag og bók efnafræðingsins Justus von Liebig var árituð í Friðriksgáfu var annar frægur efnafræðingur að gera tímamótauppgötvun úti í hinum stóra heimi. Þann 17. febrúar 1869 birti Rússinn Dmitri Mendeleev fyrstu drög að lögmáli um lotuvirkni frumefna, byggða á atómmassa þeirra, það sem við þekkjum í dag undir nafninu Lotukerfið (periodic system). Og sama dag hitti Gordon Bennett blaðamann að nafni Henry Morton Stanley á hóteli í París og sagði við hann: „Finndu Livingstone!“ Uppgötvun Mendeleev og fundur þeirra Bennet og Stanley eru dæmi um þær miklu samfélagsbreytingar og tækniframfarir sem urðu á 19. öld. Íslendingar urðu lítt varir við þessa nýju heimsmynd á árinu 1869. Árið var erfitt fyrir Íslendinga, óhagstætt veðurfar og hafís setti sitt mark á daglegt líf og snjóþungur febrúarmánuður var kaldur norðanlands.

En aftur að árituninni. Grenndargralið telur svo gott sem víst að téður Þórður Tómasson sé læknir, búsettur á Akureyri frá hausti 1868 til ársloka 1873. Kannski sat hann við skrifborð amtmanns á köldum og tíðindalitlum febrúardegi og áritaði bók við kertaljós á meðan Evrópa sigldi hraðbyri inn í nútímann með stjórnarbyltingum og tækninýjungum. En hver er sagan á bak við Þórð Tómasson og af hvaða tilefni áritar læknir bók á heimili amtmanns?