Sagnalist leitar að sjálfboðaliðum í viðtöl
Hefur þú áhuga á að skrásetja ævisögu þína eða vel valda æviþætti? Býr kannski ættingi þinn eða vinur yfir sögu sem er þess virði að skrá og varðveita fyrir komandi kynslóðir? Sagnalist leitar að sjálfboðaliðum til að prufukeyra svokallaða grunn– og vinnslupakka.
Að lokinni úrvinnslu viðtals fá viðmælendur viðtalið til eignar án endurgjalds í formi hljóðskrár á USB-lykli auk innsláttar og þriggja útprentaðra eintaka af viðtalinu í sérmerktum möppum.
Allar nánari upplýsingar um framkvæmd viðtala Sagnalistar má finna á heimasíðunni www.sagnalist.is undir liðnum Sagan þín.
Vinsamlegast sendu tölvupóst á sagnalist@sagnalist.is ef þú hefur áhuga á að taka þátt.
Starfsfólk Sagnalistar.