Leitinni að Grenndargralinu 2014 er lokið. Það voru þeir Natan Dagur Benediktsson og Þórður Tandri Ágústsson úr 10. bekk í Giljaskóla sem fundu Gralið þetta árið. Þeir eru því sigurvegarar í Leitinni að Grenndargralinu árið 2014. Þetta er annað árið í röð sem Giljaskóli sigrar í Leitinni. Síðastliðinn vetur fundu Bergvin Leif Garðarsson og Patrik Orri Jóhannsson Gralið.
Síðasta þraut birtist á heimasíðunni kl. 15:30 og þá fór allt af stað. Sextán lið höfðu þá tryggt sér réttinn til að taka þátt í lokasprettinum og leita að Gralinu. Aldrei hafa liðin verið jafnmörg og nú í ár. Þátttakendur reyndu að finna rétt svör við lokaþrautinni og gerðu það í kapphlaupi við tímann. Fimm klukkustundum eftir að þrautin fór í loftið höfðu átta lið náð að leysa lokaþrautina, fundið út lykilorðið og fengið í hendur lokavísbendinguna sem vísaði á Gralið. Natan Dagur og Þórður Tandri náðu fyrstir allra að leysa vísbendinguna og voru mættir til að taka við Grenndargralinu fimm og hálfri klukkustund eftir að leit hófst. Sannarlega glæsilegur árangur hjá þeim félögum sem og öllum hinum duglegu krökkunum sem fóru alla leið í þessari löngu og ströngu leit. Þeir eru allir sigurvegarar og eiga heiður skilinn fyrir frábæra frammistöðu. Með dugnaði sínum og áhuga eru þeir öðrum mikil fyrirmynd. Gralið verður geymt næsta árið í Giljaskóla en þetta er í þriðja skiptið á sjö árum sem nemendur Giljaskóla vinna Leitina. Formleg afhending Gralsins fer fram mánudaginn 1. desember. Við óskum Natani og Þórði, sem og Giljaskóla, til hamingju með sigurinn.
Grenndargralið kom í leitirnar kl. 21:00. Þá hafði leit staðið yfir í fimm og hálfa klukkustund. Það voru þeir Natan Dagur Benediktsson og Þórður Tandri Ágústsson í Giljaskóla sem fundu Gralið. Grenndargralið óskar þeim til hamingju með sigurinn.
Nánar um fund Gralsins síðar.

Löng og ströng leit er að baki og þátttakendur hafa staðið sig með mikilli prýði. Framundan er hörð samkeppni milli liðanna sem eftir standa. Nú gildir að vera sem fljótastur að leysa lokaverkefnin sem vísa á Gralið. Endaspretturinn fer fram með eftirfarandi hætti:
Síðasta þrautin birtist á heimasíðu Leitarinnar föstudaginn 14. nóvember kl. 15:30. Þar með hefst kapphlaupið mikla. Ólíkt fyrstu 9 vikunum (þar sem ekki skipti máli hvenær lausnum var skilað) skiptir öllu máli núna að skila lausninni til umsjónarmanns sem fyrst. Þátttakendur verða að meta með hvaða hætti auðveldast sé að koma lausninni til umsjónarmanns á sem stystum tíma.
Ef lausnin við þraut nr. 10 er rétt fá þátttakendur síðasta bókstafinn frá umsjónarmanni. Eftir að hafa fundið út lykilorðið og komið því til umsjónarmanns fá þátttakendur lokavísbendingu sem vísar þeim á Gralið. Það lið sem finnur Gralið sigrar í Leitinni að Grenndargralinu 2014. Sigurvegararnir taka Gralið með sér en láta aðra keppendur ekki vita af því að það sé fundið.
Aðeins þeir sem hafa skilað inn réttum úrlausnum við öllum þrautunum tíu, fengið bókstafina sem þeim fylgja og fundið lykilorðið fá lokavísbendinguna sem vísar á Gralið.
Kæru þátttakendur.
Þið hafið staðið ykkur vel. Frá því í haust, þegar Leitin hófst, hafa nokkur lið hætt þátttöku. Þið eruð komin alla þessa leið vegna áhuga ykkar og þrautseigju. Nú getur allt gerst. Grenndargralið er handan við hornið.
Með dugnaði ykkar og útsjónarsemi hafið þið sýnt að þið getið leyst erfið verkefni á stuttum tíma. Þið megið nú sem fyrr nýta ykkur alla þá aðstoð sem þið getið fengið t.d. frá mömmu, pabba, ömmu og afa.
Gangi ykkur vel.
Brynjar Karl Óttarsson umsjónarmaður Leitarinnar.